- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Donni og félagar kræktu í annað stigið

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, var markahæstur hjá PAUC í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Chambéry á heimavelli, 26:26. Donni skoraði sex mörk í 12 skotum. PAUC var þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12, hafði náð fjögurra marka forystu þegar...

Aron og Arnór bikarmeistarar

Aron Pálmarsson og Arnór Atlason urðu í dag danskir bikarmeistarar í handknattleik með Aalborg Håndbold. Álaborgarliðið lagði GOG, 30:27, í úrslitaleik eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:16. Aron skoraði sjö mörk í 11 skotum fyrir...

Leikjavakt: Hver er staðan?

Fimm leikir fara fram í 19. umferð Olísdeildar karla í dag og í kvöld. 16.00 KA - Afturelding.16.00 HK - Grótta.17.00 ÍBV - Haukar.18.00 Víkingur - Selfoss.19.30 FH - Stjarnan. Staðan í Olísdeild karla. Handbolti.is ætlar að freista þess að fylgjast með...

Stórleikur Elvars dugði skammt

Ekki dugði stórleikur Elvars Ásgeirssonar fyrir Nancy gegn meisturum PSG í frönsku 1. deildinni í handknattleik en í leiknum áttust við neðsta og efsta lið deildarinnar og fór svo að PSG vann með fimm marka mun, 37:32. Elvar skoraði átta...
- Auglýsing-

Teitur Örn með fimm – Elvar Örn er meiddur

Teitur Örn Einarsson átti prýðilegan leik þegar lið hans Flensburg vann öruggan sigur á Melsungen, 32:26, í Melsungen í dag í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Teitur Örn skorað fimm mörk og átti tvær stoðsendingar. Frændi hans, Elvar Örn...

Bjartur Már og félagar unnu neðri hluta keppninnar

Bjartur Már Guðmundsson fyrrverandi leikmaður Víkings hefur í vetur leikið með færeyska úrvalsdeildarliðinu StÍF í Skálum í Færeyjum. Hann hefur gert það gott þótt ekki hafi piltur verið í hópi markahæstu leikmanna. „Stoðsendingar og góð stýring telur oft meira...

Dagskráin: Haukar leika í Eyjum og hugsanlega sætaskipti

Fimm leikir fara fram í Olísdeild karla í handknattleik í dag í 19. umferð. Fyrsti leikur umferðarinnar var í gærkvöld. Valur vann Fram með fjögurra marka mun, 30:26. Efsta lið Olísdeildar, Haukar, sækir ÍBV heim í stórleik umferðarinnar. Flautað verður...

Þóra Björg fór á kostum í átta marka sigri

Ungmennalið ÍBV beit hressilega frá sér þegar það mætti ungmennaliði Vals í Grill66-deild kvenna í handknattleik í Origohöllinni í gærkvöld. Unglingalandsliðskonan Þóra Björg Stefánsdóttir fór á kostum í liði ÍBV. Hún skoraði 12 mörk í átta marka sigri, 34:26. ÍBV-liðið...
- Auglýsing-

Meistararnir sendu skýr skilaboð

Ríkjandi Þýskalandsmeistarar í handknattleik, THW Kiel, eru ekki alveg tilbúnir að gefa meistaratitilinn eftir átakalaust þótt þeir séu enn nokkuð á eftir SC Magdeburg en síðarnefnda liðið hefur farið á kostum á leiktíðinni og þykir afar líklegt til þess...

Molakaffi: Viktor, Aron, Sandra, Elliði, Örn, Anton, Arnar, Sveinbjörn, Orri, Aron, Axel, Hannes, Haukur

Íslendingaliðin Aalborg Håndbold og GOG mætast í úrslitum dönsku bikarkeppninnar í handknattleik karla í dag. Aalborg vann ríkjandi bikarmeistara Mors Thy, 34:25, í undanúrslitum i gær og GOG lagði Bjerringbro/Silkeborg, 35:26.  Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk og átti eina stoðsendingu...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18191 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -