Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Framarar semja við Svartfelling og Króata

Framarar ætla að blása til enn kröftugrar sóknar á næsta keppnistímabili í Olísdeild karla í handknattleik samhliða flutningi höfuðstöðva sinna í Úlfarsárdal. Í morgun tilkynnti handknattleiksdeildin að hún hafi samið við Svartfellinginn Luka Vukicevic og Króatann Marko Coric frá...

Geggjað að vera í þessari stöðu

„Verkefnið er gríðarlega spennandi og ég held að hópurinn sé tilbúinn að gefa allt í leikinn,“ sagði Thea Imani Sturludóttir sem leikur sinn 54. A-landsleik í dag þegar íslenska landsliðið mætir serbneska landsliðinu í úrslitaleik um EM-farseðil í kristalshöllinni,...

Dagskráin: Knýja Kórdrengir fram oddaleik?

Einn leikur fer fram í kvöld í umspili um sæti í Olísdeild karla í handknattleik þegar ÍR-ingar sækja Kórdrengi heim í annarri umferð undanúrslita. Leikið verður í Kórnum og verður hafist handa klukkan 18. ÍR hefur einn vinning og vinni...

Elín Jóna er klár í slaginn – þessar leika gegn Serbum

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, markvörður, er tilbúin í slaginn með íslenska landsliðinu í úrslitaleiknum við Serba um þátttökurétt á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í kristalshöllinni í Zrenjanin í Serbíu í dag. Flautað verður til leiks klukkan 16. Elín Jóna meiddist í...
- Auglýsing-

Molakaffi: Elliði, Guðjón Arnar, Sveinbjörn, Nagy, Tumi, Anton, Örn, Aðalsteinn, þýski bikarinn, Lugi, Pereira

Íslendingliðið Gummersbach heldur sinni siglingu í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Liðið í efsta sæti sem fyrr, átta stigum á undan Nordhorn sem er í öðru sæti þegar níu umferðir eru eftir. Gummersbach vann EHV Aue í gær, 35:31,...

Selfyssingar fögnuðu í Krikanum

Leikmennn Selfoss gerðu sér lítið fyrir og lögðu FH-inga í Kaplakrika í kvöld í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla 28:27. Í jöfnum leik í Krikanum var jafnt að loknum fyrri hálfleik, 12:12. Selfoss hefur þar...

Óðinn Þór innsiglaði sigurinn

Óðinn Þór Ríkharðasson tryggði KA sigur á útivelli gegn Haukum í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld. Hann skoraði úr vítakasti á síðustu sekúndu, vítakasti sem hann vann sjálfur. Lokatölur 30:29,...

Frá Haukum til Mið-Austurlanda

Aron Kristjánsson hættir þjálfun karlaliðs Hauka í vor eftir að hafa verið tvö ár í stóli þjálfara að þessu sinni. Aron staðfesti brotthvarf sitt við Vísir í dag sem hefur heimildir fyrir að Rúnar Sigtryggsson sé líklegasti arftaki Arons...
- Auglýsing-

Fjölnismenn eru í þjálfaraleit

Forsvarsmenn handknattleiksdeildar Fjölnis hefur hafið leit að þjálfara fyrir meistararflokks lið félagsins eftir að Guðmundur Rúnar Guðmundsson óskaði eftir að láta af störfum í lok yfirstandandi keppnistímabils. Guðmundur Rúnar er að ljúka sínu öðru keppnistímabili sem þjálfari meistaraflokks karla. Liðið...

Ummælum Valsmanns vísað til aganefndar

Framkvæmdastjóri HSÍ hefur fyrir hönd stjórnar sent erindi til aganefndar vegna ummæla leikmanns Vals eftir leik Vals og Fram í úrslitakeppni Olísdeildar karla sem fram fór í gær. Þetta kemur fram í fundargerð aganefndar HSÍ sem birt var síðdegis. Ekki...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18966 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -