Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Dregur til tíðinda í bikarnum

Áfram verður leikið í átta liða úrslitum Coca Cola-bikar kvenna og karla í handknattleik í dag. Fjórir æsispennandi leikir eru á dagskrá. Sigurliðin í leikjum dagsins leika í undanúrslitum keppninnar miðvikudaginn 9. og fimmtudaginn 10. mars á Ásvöllum í...

Bernskudraumurinn er að rætast

„Bernskudraumurinn um að verða atvinnumaður í handbolta í Þýskalandi rættist með samningnum við Emsdetten. Það er frábært,“ sagði handknattleiksmaðurinn Örn Vésteinsson Östenberg þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans á dögunum eftir að Örn skrifaði undir eins og hálfs...

Molakaffi: Viktor, Aron, Arnór, Sandra, Lilja, Steinunn, Elín, Haukur, Aðalsteinn, Tumi, Anton, Örn

Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki GOG annan hálfleikinn í gær þegar liðið vann Holstebro, 32:30, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Hann varði fimm skot, 28%. GOG er efst í deildinni með 41 stig eftir 21 leik.  Aron...

Dramatískur sigur hjá Donna og félögum

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og samherjar í PAUC unnu sannkallaðan baráttusigur í kvöld á útivelli á liðsmönnum Nimes, 29:28, í frönsku 1. deildinni í handknattleik. Sigurmarkið var skoraði úr vítkasti þegar 10 sekúndur voru til leiksloka. Nimes var tveimur...
- Auglýsing-

Neistinn steinlá í úrslitaleiknum

Neistin steinlá fyrir H71 í úrslitaleik færeysku bikarkeppninnar í handknattleik karla í kvöld, 28:12, sem er stærsti sigur liðs í úrslitaleik bikarkeppninni að minnsta kosti frá árinu 1985. Felix Már Kjartansson skoraði tvö mörk fyrir Neistan og gamla brýnið Finnur...

Bikarmeistararnir fyrstir í undanúrslit

Bikarmeistarar Vals eru komnir í undanúrslit í Coca Cola-bikar karla í handknattleik. Þeir unnu Víkinga, 32:25, í Origohöllinni í kvöld eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:15. Leikið verður til undanúrslita í Coca Cola-bikarnum fimmtudaginn...

Dagskráin: Reykjavíkurslagur í átta liða úrslitum

Átta liða úrslit Coca Cola-bikars karla í handknattleik hefjast í dag með einni viðureign. Reykjavíkurliðin Valur og Víkingur ríða á vaðið er þau leiða saman hesta sína í Origohöll Valsara klukkan 16 í dag. Í boði er sæti í...

Molakaffi: Janus, Grétar, Ágúst, Felix, Arnar, Finnur, Johansson, Mathe, Hinrik Hugi

Janus Daði Smárason tognaði á nára í fyrsta leik Göppingen í Þýskalandi eftir Evrópumótið í síðasta mánuði og hefur hann af þeim sökum ekki tekið þátt í þremur síðustu leikjum liðsins í þýsku 1. deildinni.Grétar Ari Guðjónsson og félagar...
- Auglýsing-

Hópsmit hjá kvennaliði ÍBV

Það blæs ekki byrlega hjá handknattleiksliði ÍBV í handknattleik um þessar mundir eftir kórónuveiran knúði dyra í herbúðum liðsins. Hópsmit er komið upp. Ekki færri en átta leikmenn leikmenn liðsins greindust smitaðir af veirunni í dag samkvæmt heimildum handbolta.is. Ekki...

Bjarki Már hefur samið við ungverskt stórlið

Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við ungverska stórliðið Veszprém. Tekur samningurinn gildi í sumar.Bjarki og Veszprém greindu frá þessum tíðindum fyrir nokkrum mínútum. Veszprém er eitt fremsta félagslið Evrópu og hefur unnið...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19007 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -