- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

HM: Leikir miðvikudags – tvö sæti í undanúrslitum

Í kvöld skýrist hvaða landslið tveggja þjóða tryggja sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik sem fram fer á Spáni. Klukkan 16.30 mætast landslið Noregs og Rússlands og þremur stundum síðar eigast Frakkar og Svíar við í síðasta...

Molakaffi: Bjarki Már, Óðinn Þór, Hákon Daði, Elliði Snær, Grétar Ari, Elvar, Viktor Gísli, Sveinn

Bjarki Már Elísson var magnaður í gærkvöld þegar lið hans Lemgo komst áfram í átta liða úrslit þýsku bikarkeppninnar með þriggja marka sigri á heimavelli á liði Füchse Berlin, 32:29, eftir framlengdan leik. Bjarki Már skoraði 13 mörk í...

HM: Spánverjar fylgdu í kjölfar Dana

Spánverjar fylgdu í kjölfar Dana í kvöld og tryggðu sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik kvenna sem fram fer á Spáni. Þær spænsku lögðu þýska landsliðið á sannfærandi hátt, 26:21, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að...

Ómar Ingi og Gísli Þorgeir í sigurliði í Partille

Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson og samherjar þeirra í þýska liðinu SC Magdeburg unnu sænska liðið Sävehof með þriggja marka mun í C-riðli Evrópudeildarinnar í handknattleik karla í kvöld, 29:26. Leikið var í Partille í Svíþjóð. Um...
- Auglýsing-

ÍR treysti stöðu sína á toppnum

ÍR treysti stöðu sína í efsta sæti Grill66-deildar kvenna í handknattleik í kvöld með því að leggja FH með fjögurra marka mun, 24:20, í viðureign liðanna í fyrsta og þriðja sæti deildarinnar. Leikið var í Kaplakrika. ÍR var með...

Tvíframlengt og Stjarnan fór áfram

Stjarnan tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla með sigri á Aftureldingu í kvöld í tvíframlengdum háspennuleik í TM-höllinni, 36:35. Hjálmtýr Alfreðsson skoraði sigurmark 40 sekúndum fyrir leikslok. Arnór Freyr Stefánsson, fyrrverandi markvörður Aftureldingar, sá...

HM: Danir í undanúrslitum í tíunda sinn

Danska landsliðið er komið í undanúrslit á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik á Spáni eftir fimm marka sigur á brasilíska landsliðinu, 30:25, í átta liða úrslitum Palau d'Esports de Granollers. Þetta er í tíunda sinn sem danska landslið leikur til...

Reknar fyrirvaralaust – „Þetta var mikið sjokk“

Þrír leikmenn voru reknir úr kvennaliði Víkings í handknattleik í haust. Tvær þeirra, Steinunn Birta Haraldsdóttir og Alana Elín Steinarsdóttir, segja sögu sína í samtali við vísir.is í morgun. Brottreksturinn er sagður án fyrirvara og skýringar sem þeim voru...
- Auglýsing-

HM: Sæti í undanúrslitum er í boði

Fyrri tveir leikir átta liða úrslita á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik á Spáni fara fram í kvöld. Sigurliðin í leikjunum mætast í undanúrslitum á föstudaginn. Annað kvöld verða síðari leikir átta liða úrslita. Gríðarleg eftirvænting ríkir í Danmörku fyrir viðureign...

Dagskráin: Hvort liðið situr eftir? – Toppslagur í Krikanum

Síðari leikur 32-liða úrslita Coca Cola-bikarkeppni karla fer fram í kvöld þegar Stjarnan og Afturelding leiða saman hesta sína í TM-höllinni í Garðabæ. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Til stóð að Hörður og Fjölnir mættust í íþróttahúsinu Torfnesi...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Blaðamannafélagi Íslands númer 162 og í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. ivar@handbolti.is
18338 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -