- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Arnar, Karlsson, Nyfjäll, Sandell, Prandi

Arnar Birkir Hálfdánsson og liðsfélagar hans hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Amo HK hafa fengið nýjan þjálfara. Hans Karlsson var ráðinn í starfið. Hann tekur við Brian Ankersen sem sagt var upp störfum fyrr í vikunni. Karlsson var áður þjálfari IFK...

Dagskráin: Haukar fara austur á Selfoss og tveir í Grill 66-deild kvenna

Annar leikur áttundu umferðar Olísdeildar kvenna fer fram í kvöld í Sethöllinni á Selfossi þegar Haukar sækja lið Selfoss heim. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Selfossliðið lék síðast á mánudaginn gegn Fram í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins en Haukar...

Sostaric átti stórleik þegar liðsmenn Dags unnu Belga – margir spennuleikir

Belgar vöfðust ekkert sérstaklega fyrir króatíska landsliðinu, undir stjórn Dags Sigurðssonar, þegar liðin mættust í 5. riðli undankeppni EM 2026 í handknattleik í Varazdin í kvöld. Króatar voru með leikinn í hendi sér frá byrjun til enda og unnu...

Léku eftir forskrift Alfreðs fyrstu 20 mínúturnar

Alfreð Gíslason og liðsmenn hans í þýska landsliðinu hófu undankeppi EM 2026 í kvöld með öruggum sigri á nágrönnum sínum frá Sviss, 35:26, í SAP-Arena í Mannheim. Þýska liðið lék lengst af vel í fyrri hálfleik og var með...
- Auglýsing-

Stefán og Örn boða til æfinga 15 ára landsliðs karla

Stefán Árnason og Örn Þrastarson þjálfarar 15 ára landsliðs karla hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga 8. - 11. nóvember. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu en æfingatímar eru á Abler, segir í tilkynningu HSÍ. Leikmannahópur:Alexander Sigurðsson, Fram.Alexander Þórðarson, Selfoss.Bergur Ingvarsson,...

Eigum fyrir höndum glímu við sterkt lið

„Við erum að fara á fullt við að búa okkur undir leikinn við Kristianstad í N1-höllinni á laugardaginn,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari Íslandsmeistara Vals í handknattleik sem undanfarna daga hefur legið yfir upptökum með leikjum sænska úrvalsdeildarliðsins sem...

Molakaffi: Wallinius, Štrlek, Petkovic, Prandi, Villeminot, Danir unnu

Sænski handknattleikmaðurinn Karl Wallinius hefur gengið til liðs við danska úrvalsdeildarliðið Ribe-Esbjerg eftir tveggja ára veru hjá THW Kiel í Þýskalandi. Ribe-Esbjerg er í slæmri stöðu í næst neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og veitir ekki af liðsauka ef ekki á...

Myndasyrpa: Ísland – Bosnía í Laugardalshöll

Bosníumenn reyndust leikmönnum íslenska landsliðsins lengi vel erfiðir í viðureigninni í undankeppni EM karla í handknattleik í Laugardalshöll í gærkvöld. Þegar á leið gaf bosníska landsliðið eftir, ekki síst eftir að stórskyttan Þorsteinn Leó Gunnarsson mætti inn á leikvöllinn...
- Auglýsing-

Brynjólfur heiðraður fyrir áratuga starf sitt fyrir HSÍ

Fyrir viðureign Íslands og Bosníu í undankeppni EM karla 2026 sem fram fór í Laugardalshöll í gærkvöld heiðraði Handknattleikssamband Íslands Brynjólf Jónsson bæklunarlæknir fyrir ómetanlegt starf sitt fyrir sambandið og handboltahreyfinguna síðustu áratugi. Brynjólfur hefur verið læknir landsliðanna í á...

Myndaveisla: Það er hollt, gott og gaman að vera saman í Höllinni

Í troðfullri Laugardalshöll í gærkvöld skemmtu sér allir, jafnt þeir yngri sem eldri, þekktir jafn sem minna þekktir, þegar íslenska landsliðið, á hátíðarstundum strákarnir okkar, hófu ferðalag sitt áleiðis að takmarkinu, lokakeppni Evrópmótsins í handknattleik 2026 með sigri á...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18696 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -