- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ísak stóð vaktina þegar Drammen fór áfram í bikarnum

Unglingalandsliðsmarkvörðurinn Ísak Steinsson átti afar góðan leik í marki Drammen í kvöld þegar liðið vann Bodø, 38:30, á heimavelli í 16-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í handknattleik. Ísak stóð í marki Drammen allan leikinn, varði 12 skot, 31%. Annar hálf íslenskur...

Framarar fóru með bæðin stigin frá Eyjum

Leikmennirnir ungu í Fram2 gáfu liðsmönnum Handknattleiksbandalags Heimaeyjar ekki neinn afslátt í fyrsta heimaleik síðarnefnda liðsins á Íslandsmóti í handknattleik í dag, í Grill 66-deild karla. Framararnir léku af fullum þunga og unnu leikinn sem seint verður minnst fyrir burðugan...

Sigurjón kallaður inn í meistaraliðið og varði vítakast

Markvörðurinn Sigurjón Guðmundsson fékk í fyrsta sinn í dag tækifæri með norska meistaraliðinu Kolstad og stóð sannarlega fyrir sínu. Sigurjón varði fimm skot, þar af eitt vítakast, 33%, á þeim skamma tíma sem hann fékk til að láta ljós...

Áfram einstefna hjá Íslendingunum á HM í Kaíró

SC Magdeburg og Veszprém unnu öðru sinni nokkuð fyrirhafnarlitla sigra á andstæðingum sínum á heimsmeistaramóti félagsliða Kaíró í dag. Magdeburg lagði Al Khaleej frá Sádi Arabíu, 35:28, og hreppti þar með efsta sætið í 1. riðli mótsins. Bjarki Már...
- Auglýsing-

Fjórði sigurinn hjá Viktori Gísla

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í pólska meistaraliðinu Orlen Wisła Płock sitja áfram í efsta sæti pólsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þeir unnu Górnik Zabrze, 27:20, á útivelli í dag og hafa þar með 12 stig að loknum fjórum leikjum...

Elliði Snær stóð fyrir sínu

Íslendingarnir hjá þýska liðinu Gummersbach fögnuðu sigri í heimsókn til nýliða Bietigheim í suður Þýskalandi í upphafsleik fimmtu umferðar þýsku 1. deildarinnar, 32:30. Stigin tvö færðu Gummersbach upp í sjötta sæti deildarinnar með þrjá vinninga af fimm mögulegum. Elliði Snær...

Stórleikur Sigvalda og Gísla fleytti þeim í úrvalsliðið – myndskeið

Stórleikur Sigvalda Björns Guðjónssonar með norska meistaraliðinu Kolstad gegn Zagreb í Meistaradeild Evrópu á síðasta miðvikudag skilaði honum sæti í liði 3. umferðar keppninnar. Sigvaldi Björn skoraði 11 mörk í 13 skotum í fjögurra marka sigri Kolstad, 29:25, sem...

Dagskráin: Fyrsti heimaleikur HBH

Einn leikur fer fram í Grill 66-deild karla í handknattleik. Hið nýstofnaða handboltalið í Vestmannaeyjum, Handknattleiksbandalag Heimaeyjar (HBH), leikur sinn fyrsta heimaleik á Íslandsmótinu. HBH fær Fram2 í heimsókn. Flautað verður til leiks klukkan 16. Ef allt gengur að...
- Auglýsing-

Molakaffi: Arnór, Tjörvi, Elmar, Óðinn, staðan

Bergischer HC vann N-Lübbecke með 13 marka mun á útivelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik á útivelli í gærkvöld, 34:21. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik þá tók Bergischer HC völdin í þeim síðari og skoraði tvö mörk á móti...

Kvöldkaffi: Orri, Stiven, staðan, Guðmundur, Birkir

Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur mörk þegar Sporting vann Belenenses, 39:26, á útivelli í 5. umferð portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik í dag. Sporting er jafnt Porto að stigum, hvort lið hefur 15 stig en þrjú stig eru gefin...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Netfang: [email protected]
18671 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -