- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Birkir er orðinn leikmaður Wakunaga í Japan

Birkir Benediktsson hefur samið við japanska handknattleiksliðið Wakunaga Pharmaceutical og hafa félagaskipti hans frá Aftureldingu verið frágengin, eftir því sem fram kemur á vef Handknattleikssambands Íslands. Sá þriðji í Japan Birkir verður þriðji íslenski handknattleiksmaðurinn til þess að leika með Wakunaga...

Elvar Örn mætir í slaginn eftir meiðsli og beint í Evrópuleik

Elvar Örn Jónsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður þýska liðsins MT Melsungen hefur jafnað sig af langvarandi og erfiðum meiðslum. Hann verður þar með væntanlega klár í bátana með Melsungenliðinu á morgun gegn norska liðinu Elverum í fyrri viðureigninni...

Snýst fyrst og fremst um okkur – handboltaveisla á Hlíðarenda á morgun

https://www.youtube.com/watch?v=WGszQcrchY4 „Við höfum ágæta hugmynd um þetta lið sem virðist vera ágætt króatískt lið sem leikur góða 6/0 vörn, leikmenn eru stórir og þungir og ekki ósvipað lið og við vorum að berjast við í fyrra í Evrópudeildinni,“ segir Óskar...

Molakaffi: Arnór, Donni, Jóhanna, Berta, Vilborg

Arnór Atlason og liðsmenn hans í TTH Holstebro komust í gær í átta liða úrslit dönsku bikarkeppninnar í handknattleik. TTH Holstebro lagði Skanderborg AGF, 32:28, á heimavelli. Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði fjögur mörk fyrir Skanderborg AGF og átti...
- Auglýsing-

FH hafði betur gegn ÍBV – 16 marka sigur Selfoss

FH fagnaði sigri á Ragnarsmóti kvenna í handknattleik í kvöld eftir að hafa lagt lið ÍBV að velli með fimm marka mun, 30:25. Sigurður Bragason þjálfari ÍBV tefldi fram táningaliði að þessu sinni. Hann gaf eldri og reyndari leikmönnum...

Kvöldkaffi: Fjórir fyrirliðar, Nielsen syrgir, Glibko látin, Drux gefst ekki upp

Ungverska meistaraliðið Veszprém hefur útnefnt fjóra fyrirliða, hvern fyrir sína keppni sem liðið tekur þátt í á komandi leiktíð. Ludovic Fàbregas verður fyrirliði í leikjum Veszprém í Meistaradeild Evrópu, Nedim Remili á að bera fyrirliðabandið á heimsmeistaramóti félagsliða sem...

Ungir og ferskir strákar sem eru tilbúnir að djöflast

https://www.youtube.com/watch?v=wGXnPsyoSg4 „Mér líst ágætlega á okkur. Ég held að við séum svolítið óskrifað blað,“ segir Bjarni Fritzson þjálfari ÍR, nýliða Olísdeildar karla í handknattleik í samtali við handbolta.is. ÍR-ingar unnu Grill 66-deildina í vor og eru þar með á ný...

Corsovic er klár í slaginn með Val í Evrópuleiknum

Fargi er létt af Óskari Bjarna Óskarssyni og Valsmönnum eftir að svartfellski línumaðurinn Miodrag Corsovic fékk leikheimild fyrir hádegið í dag. Corsovic getur þar með leikið með Valsliðinu á laugardaginn gegn RK Bjelin Spacva Vinkovci í forkeppni Evrópdeildarinnar í...
- Auglýsing-

FH-ingar hefja keppni í Evrópudeildinni í Toulouse

Íslandsmeistarar FH hefja leik í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla í Toulouse í Frakklandi þriðjudaginn 8. október. Viku síðar verður fyrsti heimaleikur FH-inga gegn annað hvort danska liðinu Mors-Thy eða Gummersbach frá Þýskalandi sem hefur Íslendingatríóið Guðjón Val Sigurðsson...

Hákon Garri hefur skrifað nafn sitt undir samning

Hákon Garri Gestsson hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild Umf. Selfoss. „Hákon Garri er vinstri skytta frá Selfossi. Í vor fékk Hákon verðlaun fyrir afrek ársins í handknattleiksakademíu Selfoss, en á yngsta ári varð hann markahæsti leikmaður 3. flokks á...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
19344 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -