Ívar Benediktsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Myndasyrpa: Meistarafögnuður FH-inga

Skiljanlega var kátt á hjalla þegar FH-ingar unnu Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í 17. skipti í gærkvöld. FH lagði Aftureldingu í þrjú skipti í fjórum viðureignum úrslitarimmunnar. Smiðshöggið var rekið að Varmá með fjögurra marka sigri í gærkvöld, 31:27....

Molakaffi: Sigvaldi, Viggó, Andri, Rúnar, Heiðmar, Daníel, Arnar, Elvar

Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad skoraði 10 mörk þegar liðið vann Elverum, 34:30, eftir tvíframlengdum oddaleik í úrslitakeppninni í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Þetta var önnur tvíframlengda viðureign liðanna í þremur úrslitaleikjum. Kolstad vann þar með öll...

Bjarki Már ungverskur meistari annað árið í röð

Bjarki Már Elísson varð ungverskur meistari í handknattleik annað árið í röð í gærkvöld með liði sínu Telekom Vezsprém. Meistarabikarinn fór á loft í Pick Arena í Szeged að loknum öðrum sigri Veszprém á Pick Szeged, 34:30, í úrslitum....

Reyndum allt til þess að koma böndum á Aron

„Þetta var ekki okkar dagur og því miður okkar slakasti leikur í allri úrslitakeppninni,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar eftir að lið hans tapaði fjórða úrslitaleiknum við FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla, 31:27, og sá þar með Aron...
- Auglýsing-

Þessum titli fylgir meiri gæsahúð af því að þetta er FH

„Það var bara stórkostlegt að þetta gekk upp. Ég var stórorður þegar ég kom heim og skrifaði undir hjá FH um að vinna Íslandsmeistaratitilinn og vissulega þurfti allt að ganga upp til þess að það gerðist. Allt gekk þetta...

Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum, leikdögum og leiktímum.Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Olísdeild...

FH er Íslandsmeistari – 17. Íslandsmeistaratitillinn í karlaflokki

FH varð í kvöld Íslandsmeistari í handknattleik karla í 17. sinn eftir að hafa lagt Aftureldingu, 31:27, í fjórða úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn að Varmá í kvöld. Sigur FH í þessum leik var sannarlega sanngjarn. Þeir voru með yfirhöndina...

HM2025: Ísland fer til Zagreb í janúar

Íslenska landsliðið keppir í Zagreb á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla á næsta ári og verður í riðli með Slóvenía, Kúbu og Grænhöfðaeyjum. Dregið var í kvöld í Zagreb í Krótaíu. Mótið hefst 14. janúar og fer fram í Danmörku...
- Auglýsing-

Streymi: Dregið í riðla HM karla 2025 í Zagreb

Hafist verður handa við að draga í riðla heimsmeistaramótsins í handknattleik Vatroslav Lisinski-tónleikhöllinni í Zagreb, höfuðborg Króatíu klukkan 17.30. Hér fyrir neðan er hægt að fylgjst með útsendingu frá afthöfninni. https://www.youtube.com/watch?v=NAOuucJ30T8 Sjá einnig: Síðdegis verður dregið í riðla HM karla 2025

Afturelding – FH: 100 miðar í sölu klukkan 14

Eitt hundrað viðbótar aðgöngumiðar á fjórða úrslitaleik Aftureldingar og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla fara í sölu á stubb.is klukkan 14. Frá þessu er greint á Facebook-síðu FH. Aðeins tók þrjá stundarfjórðunga að selja talsvert á annað þúsund aðgöngumiða...

Um höfund

Ívar Benediktsson kom í heiminn árið 1965. Hann hefur unnið við blaðamennsku frá 1994 en hóf að skrifa í blöð upp úr 1980. Íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu og mbl.is frá 1995 uns honum var sagt upp störfum í lok nóvember 2019. Hann kom handbolti.is á koppinn árið 2020. Félagi í Samtökum íþróttafréttamanna frá 1995. Ívar er einnig forstjóri útgerðarfélagsins Staðið á sporði. Netfang: [email protected]
18950 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -