Bjarki Már Elísson var maður leiksins í íslenska landsliðinu í kvöld í tapinu fyrir Ungverjum, 30:28, í annarri umferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla. Það er alltént álit lesenda handbolta.is sem svöruðu spurningu sem lögð var fram eftir leikinn. Bjarki Már fékk yfir helming greiddra atkvæða, 53,2% og bar höfuð og herðar yfir aðra.
Alls fengu 11 af 16 leikmönnum liðsins atkvæði í könnunni sem nánast jafn margir og tóku þátt í leiknum með beinum hætti. Reyndar fékk einn leikmaður sem ekkert kom við sögu eitt atkvæði.
Niðurstöður kvöldsins:
Bjarki Már Elísson | 53,2% |
Björgvin Páll Gústavsson | 14,5% |
Elliði Snær Viðarsson | 11,3% |
Ómar Ingi Magnússon | 6,5% |
Aron Pálmarsson | 4,8% |
Aðrir minna. |
Björgvin Páll Gústavsson var valinn maður leiksins af lesendum handbolta.is eftir sigurleikinn á Portúgal á fimmtudagskvöldið.
Áfram heldur handbolti.is að leita til lesenda um að velja mann leiksins. Næst verður brugðið á leik á mánudaginn þegar íslenska landsliðið mætir landsliðið Suður Kóreu í síðustu umferð D-riðils. Sá leikur hefst klukkan 17.