- Auglýsing -
- Auglýsing -

Björgvin Páll bestur að mati lesenda

Björgvin Páll Gústavsson, maður leiksins gegn Portúgal að mati lesenda handbolta.is. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Lesendur handbolta.is völdu Björgvin Pál Gústavsson besta leikmann íslenska landsliðsins í sigurleiknum á Portúgal á heimsmeistaramótinu í handknattleik.

Björgvin Páll hlaut yfirburða kosningu, hlaut 57,1% atkvæða í kosningu sem stóð yfir á handbolta.is í rúmlega klukkutíma eftir að flautað var til leiks eftir stórgóðan sigur íslenska landsliðsins, 30:26, í Kristianstad Arena í kvöld.

Björgvin Páll Gústavsson57,1%
Ómar Ingi Magnússon15,3%
Bjarki Már Elísson12,9%
Elliði Snær Viðarsson8,6%
Elvar Örn Jónsson3,1%
Aðrir minna.


Handbolti.is þakkar lesendum sínum fyrir þátttökuna og minnir um leið á að leikurinn verður endurtekinn eftir hvern leik íslenska landsliðsins mótið á enda.

D-riðill (Kristianstad)
14. janúar:
Portúgal – Suður Kórea, kl. 17.
Ísland – Ungverjaland, kl. 19.30.
16. janúar:
Suður Kórea – Ísland, kl. 17.
Portúgal – Ungverjaland, kl. 19.30.

Leikjadagskrá, úrslit og staðan á HM.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -