Sigursteinn Arndal þjálfari FH reiknar með að stilla upp sínu allra sterkasta liði gegn Gummersbach í annarri umferð Evrópudeildarinnar í Kaplakriki í kvöld á 95 ára afmæli félagsins.
„Ég get fullvissað fólk um að allir eru að gera sitt...
Róbert Gunnarsson varð Evrópumeistari tvö ár í röð með Gummersbach. EHF-meistari 2009 og Evrópumeistari bikarhafa 2010. Þá var hann fyrirliði liðsins og lyfti Evrópubikarnum.
Kristján Arason var fyrsti Íslendingurinn til að vera í herbúðum Gummersbach og varð hann Þýskalandsmeistari með...
Þór færðist upp að hlið Víkings og Fram2 í eitt þriggja efstu sæta Grill 66-deildar karla í kvöld með því að tryggja sér tvö stig til viðbótar að launum fyrir að leggja Selfoss með átta marka mun, 34:26, í...
Leikmenn Porto hafa stuttan stans hér á landi vegna leiksins gegn Val í Evrópudeildinni á morgun í Kaplakrika. Liðið verður aðeins í 23 stundir hér á á landi og ljóst að hvorki verður farinn Gullni hringurinn né helstu baðlón...
Bikarmeistarar Vals í handknattleik karla mæta Gróttu í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins en til stendur að leikir 16-liða úrslita fari fram sunnudaginn 17. nóvember. Valur fær heimaleik gegn Gróttumönnum sem hafa farið mikinn í upphafi leiktíðar í Olísdeildinni.
Dregið var í...
Aðeins ein viðureign verður á milli liða úr Olísdeildinni í fyrstu umferð Powerade-bikarkeppni kvenna í handknattleik. Það er skýrt eftir að dregið var til fyrstu umferðar, 16-liða úrslita, laust eftir hádegið í dag. Um er að ræða viðureign Selfoss...
Dregið verður á morgun, þriðjudag, í aðra umferð eða 32-liða úrslit, Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Nöfn Vals og Hauka verða í skálunum þegar dregið verður. Ekki er hægt að útiloka að íslensku liðin dragist saman vegna þess að þau...
Íslensk lið hafa tíu sinnum leikið gegn liðum frá Portúgal í Evrópukeppni í handknattleik og háðar hafa verið 20 viðureignir. Íslensk lið hafa sex sinnum fagnað sigri, einu sinni gert jafntefli og tapað 13 viðureignum.
Haukar hafa leikið 10 leiki...
Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf og hann var á meðal þeirra sem gladdist í gær þegar liðið vann Potsdam, 27:22, á útivelli. Hannover-Burgdorf settist í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar með þessum sigri. Liðið er með 10 stig eftir...
Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, mætir með lærisveina sína í Kaplakrika í Hafnarfirði þriðjudaginn 15. október, þar sem Gummersbach mætir FH í Evrópudeildinni í handknattleik kl. 20.30. Með honum koma tveir landsliðsmenn Íslands; þeir Elliði Snær Viðarsson og Teitur...
Stórleikur Eyjamannsins Elmars Erlingssonar dugði HSG Nordhorn-Lingen ekki til sigurs í heimsókn til Dessau-Rosslauer HV 06 í þýsku 2. deildinni í dag. Elmar skoraði níu mörk, þrjú þeirra úr vítaköstum auk fjögurra stoðsendinga og segja má að hann hafi...
Spánverjinn Jorge Maqueda leikmaður Industria Kielce missti stjórn á sér og beit Mirsad Terzic leikmann Wisla Plock og samherja Viktors Gísla Hallgrímssonar markvarðar í viðureign liðanna í pólsku úrvalsdeildinni í dag. Eftir að dómarar leiksins höfðu farið yfir upptöku...
Víkingur er einn áfram ósigraður í Grill 66-deild karla í handknattleik þegar liðið hefur leikið þrisvar sinnum. Fram2, mest ungmenni, hefur einnig sex stig en hefur lokið einni viðureign fleira. Bæði lið unnu viðureignir sínar í gær þegar þrjár...
Íslensku handknattleiksmennirnir þrír sem leika með félagsliðum í efstu deild portúgalska handknattleiksins létu heldur betur til sín taka í leikjum liðanna í gær. Skoruðu þeir Orri Freyr Þorkelsson, Stiven Tobar Valencia og Þorsteinn Leó Gunnarsson samtals 21 mark í...
Áfram heldur Harpa María Friðgeirsdóttir að gera það gott með TMS Ringsted í næst efstu deild danska handknattleiksins. Hún skoraði fimm mörk í gær þegar Ringsted vann Ejstrup-Hærvejen, 30:28, á útivelli í 4. umferð. Franska landsliðskonan fyrrverandi, Alexandra Lacrabere,...