Leikmenn Selfoss 2 fór tveimur stigum ríkari heim úr Myntkaup-höllinni að Varmá í kvöld eftir að hafa lagt liðsmenn Hvíta riddarans, 35:28, í níundu umferð Grill 66-deildar karla. Enn er Hvíti riddarinn án sigurs á heimavelli í deildinni.Selfoss-liðið var...
Litlu munar á tveimur markahæstu leikmönnum Olísdeildar karla þegar átta umferðir af 22 eru að baki. Bjarni Ófeigur Valdimarsson leikmaður KA er áfram markahæstur en Eyjapeyinn Elís Þór Aðalsteinsson sækir hart að Bjarna Ófeigi.
Aðeins munar tveimur mörkum á þeim....
Ásbjörn Friðriksson og Ólafur Stefánsson hafa valið pilta til æfinga með 16 ára landsliðinu. Æfingarnar fara fram frá 31. október til 2. nóvember á höfuðborgarsvæðinu.
Leikmenn:Alexander Sigursteinsson, HK.Alexander Þórðarson, Selfoss.Bjartur Fritz Bjarnason, ÍR.Brynjar Halldórsson, Haukar.Brynjar Narfi Arndal, FH.Dagbjartur Ólason, Selfoss.Einar...
Markvörðurinn Andri Snær Sigmarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Andri Snær er tvítugur Eyjapeyi sem hefur æft með liðinu að undanförnu. Hann hefur þegar leikið fimm leiki fyrir Gróttuliðið í Grill 66-deildinni.
„Andri Snær er góð...
Kristinn Björgúlfsson og Halldór Örn Tryggvason hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga með 15 ára landsliði karla í handknattleik.
Æfingarnar verða á höfuðborgarsvæðinu 31. október – 2. nóvember.
Leikmenn:Andri Árnason, Stjarnan.Birkir Bjarnason, Stjarnan.Brynjar Þór Björnsson, Stjarnan.Fannar Breki Vilhjálmsson, Stjarnan.Gabríel Fannar Ólafsson,...
Kristrún Steinþórsdóttir leikur ekki fleiri leiki með Olísdeildarliði Fram á keppnistímabilinu. Kristrún gengur með sitt fyrsta barn og verður þar af leiðandi utan vallar. Frá þessu greindi Haraldur Þorvarðarson þjálfari Fram í viðtali við Símann áður en útsending hófst...
Báðir vináttulandsleikir Þýskalands og Íslands í handknattleik karla sem fram fara í Þýskalandi á næstu dögum verða sendir út beint í sjónvarpi á RÚV2. Fyrri viðureignin verður í Nürnberg á fimmtudaginn. Útsending hefst klukkan 18.30.Síðari leikurinnn fer fram í...
Birtur hefur verið hópur 35 kvenna sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari í handknattleik hefur valið vegna þátttöku íslenska landsliðsins á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Hollandi og Þýskalandi í lok nóvember og framan af desember. Úr þessum hópi verður síðan...
Íslenska landsliðið í handknattleik karla kemur saman í München í Þýskalandi síðdegis í dag. Framundan eru fyrstu æfingar landsliðsins síðan í maí áður en leikið var við Georgíu í undankeppni Evrópumótsins. Auk æfinga verður leikið tvisvar við þýska landsliðið,...
Bleik keppnistreyja sem norska handknattleikskonan Camilla Herrem klæddist í kappleik með Sola í síðustu viku seldist á 100 þúsund kr norskar, jafnvirði 1,2 milljóna íslenskra kr, á uppboði sem haldið var í kjölfar leiksins. Þetta er hæsta verð...
Dana Björg Guðmundsdóttir var næst markahæst hjá Volda í gær þegar liðið gerði jafntefli, 30:30, í heimsókn til Trondheim Topphåndball í næst efstu deild norska handboltans. Leikið var í Husebyhallen í Þrándheimi. Dana Björg skoraði átta mörk úr 11...
Kolstad endurheimti efsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar í karlaflokki í kvöld með sigri á Drammen HK í Drammen, 29:26, í hörkuleik. Ísak Steinsson markvörður og samherjar hans í Drammen HK voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13. Í síðari hálfleik...
Einar Þorsteinn Ólafsson og liðsfélagar í HSV Hamburg gerðu usla í toppbaráttu þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í kvöld þegar þeir lögðu Þýskalandsmeistara Füchse Berlin, 39:38, í viðureign liðanna í Max Schmeling-Halle í Berlín. Füchse Berlin hefur þar með...
Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhorn-Lingen unnu nauman sigur á VfL Lübeck-Schwartau, 27:26, í hörkuleik á heimavelli í dag í 2. deild þýska handknattleiksins. Elmar lék afar vel og skoraði m.a. fimm í átta skotum og gaf sex stoðsendingar.
Kristian...
Haukur Þrastarson var stórkostlegur í dag þegar hann leiddi Rhein-Neckar Löwen til sigurs á Stuttgart á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 38:34. Selfyssingurinn fór nánast með himinskautum í leiknum. Hann skoraði 14 mörk í 16 skotum. Auk...