Slóvenar fylgja Spánverjum eftir í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna úr fyrsta riðli undankeppninnar. Slóvenar tryggðu sér farseðilinn til Parísar í dag með sigri á landsliði Barein, 32:26, í þriðju og síðustu umferð 1. riðils í Granollers á Spáni. Aron Kristjánsson er...
Íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir landsliði Eistlands í umspilsleikjum í maí um keppnisrétt á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Danmörku, Króatíu og Noregi í janúar á næsta ári. Eistlendingar unnu Úkraínumenn í dag, 41:33, í síðari leik þjóðanna...
Króatíska landsliðið, undir stjórn Dags Sigurðssonar, mætir landsliði Alsír í 3. umferð forkeppni handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, í Hannover klukkan 15.45. Króatíska landsliðið hefur þegar tryggt sér farseðilinn á Ólympíuleikana í sumar. Alsíringar eiga ekki lengur möguleika á að fylgja Króötum...
Þjóðverjar verða með handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum í París í sumar. Þeir unnu Austurríkismenn, 34:31, í úrslitaleik um farseðil á leikana í síðustu umferð 2. riðils forkeppni leikanna í ZAG-Arena í Hannover í dag. Um leið er ljóst...
Klukkan 14.15 hefst viðureign landsliða Barein og Slóveníu í 3. umferð forkeppni Ólympíuleikanna í handknattleik karla. Leikið er í Granollers á Spáni. Aron Kristjánsson er þjálfari landsliðs Barein.
Forkeppni ÓL24, karlar: Leikir, úrslit, staðan
Hér fyrir neðan er hlekkur á...
Þýska landsliðið, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, mætir landsliði Austurríkis í 3. umferð forkeppni handknattleikskeppni Ólympíuleikanna, í Hannover klukkan 13.10. Um er að ræða hreinan úrslitaleik um þátttökurétt á Ólympíuleikunum. Hvort lið hefur tvö stig eftir tvo leiki.
Forkeppni ÓL24, karlar:...
„Frammistaða okkar var hrikalega góð, ekki síst varnarleikurinn enda höfðum við búið okkur mjög vel undir leikinn. ÍR-ingar skoruðu ekki nema tvö mörk í fyrri hluta fyrri hálfleiks og það úr vítaköstum. Það segir sína sögu,“ sagði Sigurgeir Jónsson,...
„Mér fannst við ekkert vera gíraðar í leikinn, svona eins og það væri ekki neitt í húfi fyrir okkur. Við virtumst bara ekki tilbúnar í alvöru stríð eins og Stjörnuliðið var mætt í,“ sagði Sólveig Lára Kjærnested þjálfari ÍR...
Fjórir síðustu leikir 17. og næst síðustu umferðar Grill 66-deildar kvenna fara fram í dag og hefjast klukkan 16. Selfoss-liðið hefur fyrir löngu unnið deildina en áfram stendur yfir keppni um sæti í umspilinu sem tekur við. Aðalbaráttan er...
Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði þrjú mörk þegar lið hennar, Volda, tapaði fyrir Ålgård, 32:28, í næst efstu deild norska handknattleiksins í gær. Leikurinn fór fram í Ålgårdhallen. Volda er áfram í öðru sæti deildarinnar og í umspilssæti ásamt Flint...
Kátt er á hjalla í herbúðum norska karlalandsliðsins eftir að það vann sér í kvöld inn þátttökurétt í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem fram fara í París í sumar. Norðmenn tryggðu sér farseðilinn til Parísar með því að leggja Ungverja, 29:25,...
Karlalandsliðið í handknattleik vann öruggan sigur á gríska landsliðinu, 32:25, í síðari vináttuleiknum í Aþenu í kvöld. Íslenska landsliðið var sex mörkum yfir að loknum fyrri hálfeik, 17:11, eftir að hafa hrist Grikki af sér eftir nærri 20 mínútna...
Það mun ekki ráðast fyrr en í síðustu umferð Olísdeildar kvenna hvort Fram eða Haukar krækja í annað sæti deildarinnar. Liðin voru jöfn að stigum fyrir næst síðustu umferðina í kvöld og standa enn jafnfætis eftir leikina vegna þess...
Framundan er vináttuleikur Grikklands og Íslands í handknattleik karla í Aþenu klukkan 17.15 auk fjögurra leikja í næst síðustu umferð Olísdeildar kvenna sem hefjast klukkan 17.30.
Handbolti.is freistar þess að fylgjast með leikjunum fimm og uppfæra stöðuna í...
Aldís Ásta Heimisdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, landsliðskonur í handknattleik, skoruðu þrjú mörk hvor og stóðu svo sannarlega fyrir sínu þegar Skara HF vann Lugi á heimavelli í dag í 20. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar, 29:27. Tvær umferðir eru eftir...