- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Myndskeið: Thea Imani í frábærum félagsskap

Thea Imani Sturludóttir leikmaður íslenska landsliðsins í handknattleik kvenna er í úrvalsliði tveggja fyrstu umferðanna i undankeppni Evrópumótsins í handknattleik kvenna. Handknattleikssamband Evrópu hefur tekið saman tilþrif sjö leikmanna í fyrstu og annarri umferð keppninnar og birt í myndskeiði...

Sókndjarfur þjálfari sem vill auka hraða leiksins

„Ég vil vera sókndjarfur þjálfari,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla spurður um þær breytingar sem hann vonast til þess að gert á leik íslenska landsliðsins þegar fram líða stundir. Snorri Steinn var ráðinn landsliðsþjálfari um mitt...

Dagskráin: Grannaslagur í Mýrinni

Sjöunda umferð Olísdeildar karla hefst í kvöld með einni viðureign. Stjarnan tekur á móti FH í Mýrinni. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Leiknum er flýtt vegna utanfarar FH-inga síðar í vikunni. Þeir eiga að vera mættir til Belgrad...
- Auglýsing -

Molakaffi: Gauti, Örn, engar „selfie“, Nielsen, Hansen, Truchanovičius

Framarinn Þorsteinn Gauti Hjálmarsson hefur verið valinn í landslið Finnlands en liðið kemur saman til æfinga og keppni frá og með 30. október. Gauti hefur átt sæti í finnska landsliðinu í nærri því ár og hefur á þeim tíma...

Elvar Örn, Arnar Freyr og félagar í annað sæti á ný

MT Melsungen með landsliðsmennina Arnar Frey Arnarsson og Elvar Örn Jónsson innanborðs gaf ekki annað sæti þýsku 1. deildarinnar eftir til Evrópumeistara SC Magdeburg nema í rúman sólarhring. Melsungen er komið á sinn stað á nýjan leik eftir að...

„Ég held að sjálfsögðu öllu opnu áfram“

„Við höfum úr mörgum handknattleiksmönnum að velja um þessar mundir en þetta er niðurstaðan og ég mjög ánægður með hana. Eini maðurinn sem stóð okkur ekki til boða að þessu sinni er Gísli Þorgeir Kristjánsson. Hann er frá vegna...
- Auglýsing -

Einn nýliði í fyrsta landsliðshópi Snorra Steins

Einn nýliði er í fyrsta landsliðshópi Snorra Steins Guðjónssonar landsliðsþjálfara karla sem hann kynnti á blaðamannafundi eftir hádegið í dag. Nýliðinn er Einar Þorsteinn Ólafsson leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Fredericia HK og lærisveinn fyrrverandi landsliðsþjálfara Guðmundar Þórðar Guðmundssonar. Haukur Þrastarson, leikmaður...

Myndskeið: Samantekt frá sigurleiknum í Þórshöfn – næstu leikir

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna vann það færeyska, 28:23, í annarri umferð undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í Þórshöfn í gær. Eftir tvær umferðir í undankeppninni hefur íslenska liðið unnið sér inn fjögur stig, og stendur vel að vígi þegar...

Andstæðingur Íslands á HM kominn með ÓL-farseðil

Einn andstæðingur íslenska landsliðsins á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik síðar á árinu, landslið Angóla, tryggði sér á laugardaginn þátttökurétt í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna sem fram fara í París á næsta ári. Landslið Kamerún tekur þátt í forkeppni sem haldið verður...
- Auglýsing -

Kaflaskipti á Nesinu

Ungmennalið Gróttu vann annan leik sinn í 2. deild karla í handknattleik í gær. Sigurinn var liðinu ekki auðsóttur gegn Víðismönnum í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi. Víðir var þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:13. Eftir afar góðan síðari...

Snorri Steinn velur sinn fyrsta landsliðshóp

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik tilkynnir í dag sinn fyrsta landsliðshóp eftir að hann var ráðinn í landsliðsþjálfari um mitt ár. Framundan eru tveir vináttuleikir við Færeyinga hér á landi 3. og 4. nóvember. Í vikunni á...

Molakaffi: Halldór, Teitur, Oddur, Daníel, Ómar, Janus, Dagur, Hafþór, Sigvaldi

Liðsmenn Nordsjælland sem Halldór Jóhann Sigfússon þjálfar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Danmerkurmeistara GOG, 32:30, í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn fór fram á heimavelli Nordsjælland. Þó margt hafi gengið á afturlöppunum hjá GOG fram til þessa á...
- Auglýsing -

Aftureldingar bíður ærið verkefni á heimavelli

Aftureldingar bíður ærið verkefni á næsta laugardag á heimavelli þegar þeir þurfa að gera gott betur en að vinna upp fimm marka tap eftir fyrri viðureignina við norska liðið Nærbø, 27:22, í Nærbø í nágrenni Stavangurs í dag. Leikurinn...

Baráttuviljinn skein af öllum

„Við sýndum ótrúlega sterkan karakter í síðari hálfleik,“ sagði Sandra Erlingsdóttir sem stýrði sóknarleik íslenska landsliðsins í handknattleik af miklum myndugleika í sigrinum á Færeyingum í Þórshöfn í dag, 28:23, en leikurinn var liður í undankeppni Evrópumótsins. Íslenska liðið...

Síðari hálfleikur var frábær hjá okkur

„Okkur tókst að gefa vel í þegar síðari hálfleikur hófst eftir að hafa dregið okkur inn í skel á kafla í fyrri hálfleik. Þó undirbúningur sé góður fyrir leikinn þá getur verið erfitt að koma inn í mikilvæga leiki...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -