- Auglýsing -
- Auglýsing -

Einn nýliði í fyrsta landsliðshópi Snorra Steins

Róbert Geir Gíslason framkvæmdastjóri HSÍ og Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari þegar landsliðshópurinn var valinn í dag. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

Einn nýliði er í fyrsta landsliðshópi Snorra Steins Guðjónssonar landsliðsþjálfara karla sem hann kynnti á blaðamannafundi eftir hádegið í dag. Nýliðinn er Einar Þorsteinn Ólafsson leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Fredericia HK og lærisveinn fyrrverandi landsliðsþjálfara Guðmundar Þórðar Guðmundssonar.


Haukur Þrastarson, leikmaður Kielce, er einnig valinn í hópinn en hann var síðasta með landsliðinu vorið 2022. Haukur er nýlega byrjaður að leika á ný með Kielce eftir krossbandaslit.

Einnig er Magnús Óli Magnússon kallaður inn í landsliðið á nýjan leik. Hann var síðast með landsliðinu á EM 2022 í Ungverjalandi. Var þá kallaður inn þegar covid herjaði á íslenska hópinn.

Íslenska landsliðið kemur saman til æfinga 30. október og mætir færeyska landsliðinu í tveimur leikjum 3. og 4. nóvember í Laugardalshöll.

Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum.

Markverðir:

Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg HH (48/2).

Björgvin Páll Gústavsson, Val (256/21).

Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (47/1).

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (83/92).

Aron Pálmarsson, FH (166/638).

Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (103/360).

Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia HK (0/0).

Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (35/54).

Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg HH (19/21).

Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (64/152).

Haukar Þrastarson, Barlinek Industria Kielce (21/22).

Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (70/109).

Kristján Örn Kristjánsson, (Donni), PAUC (28/58).

Magnús Óli Magnússon, Val (16/7).

Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (28/88).

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (72/240).

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (61/167).

Stiven Tobar Valencia, Benfica (4/6).

Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig Handball (43/110).

Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (76/35).

Þorsteinn Leó Gunnarsson, Aftureldingu (2/1).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -