Sænski handknattleiksmarkvörðurinn Cornelia Hermansson hefur samþykkt að ganga til liðs við Selfoss og leika með liði félagsins í Olísdeild kvenna næstu tvö ár. Hermansson kemur til Selfoss frá Kärra HF en einnig hefur hún verið í herbúðum Önnereds HK...
Handknattleikskonan úr ÍBV, Aníta Björk Valgeirsdóttir, hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild FH og mun leika með liðinu í Grill66 -deildinni næsta vetur samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá FH eldsnemma í morgun.
Aníta Björk, sem hefur verið...
Rússinn Konstantin Igropulo verður aðstoðarþjálfari Evrópumeistara Barcelona á næsta tímabili samkvæmt fregnum Esports Rac1 á Spáni. Igropulo lék með Barcelona fyrir allmörgum árum. Hann var þjálfari Dinamo Viktor í Rússlandi á síðasta tímabili. Carlos Ortega þjálfari Barcelona og Igropulo...
Íslensku stúlkurnar í U16 ára landsliðinu eiga fjóra leiki eftir á Opna Evrópumótinu í handknattleik sem haldið í Gautaborg, samhliða Partille cup-mótinu. Eftir að hafa tapað tveimur leikjum og gert eitt jafntefli í riðlakeppninni tekur íslenska liðið þátt í...
U20 ára landslið Íslands í handknattleik karla fór af landi brott í morgun til þátttöku á Evrópumeistaramótinu sem hefst í Porto í Portúgal á fimmtudaginn. Fyrsti leikur íslenska landsliðsins verður gegn Serbum á fimmtudaginn. Einnig eru með í C-riðli...
Franska 2. deildarliðið Cavigal Nice, sem Grétar Ari Guðjónsson markvörður, lék með frá 2020 og til loka leiktíðar í vor, er eina liðið af sextán í deildinni sem ekki hefur fengið leyfi til þess að taka þátt í deildarkeppninni...
U16 ára landslið Íslands tapaði fyrir Póllandi með níu marka mun, 21:12, í síðustu umferð riðlakeppni Opna Evrópumótsins í handknattleik í Gautaborg í morgun. Þetta var annað tap liðsins í þremur viðureignum en einum leik lauk með jafntefli, 20:20,...
„Mesta breytingin var örugglega að flytja út til Þýskalands og búa einn en ég hef vanist því núna,“ segir Andri Már Rúnarsson handknattleiksmaður hjá þýska 1. deildarliðinu Stuttgart og einn leikmanna U20 ára landsliðsins sem síðar í...
Bjarni Ófeigur Valdimarsson og samherjar hans í sænska handknattleiksliðinu IFK Skövde HK taka ekki þátt í Evrópukeppni á næsta keppnistímabili. Skövde hafnaði í öðru sæti í sænsku úrvalsdeildinni í vor og tapað fyrir Ystad í úrslitaeinvígi um meistaratitilinn og...
Evrópumeistarar Barcelona í handknattleik karla, staðfestu loks í gær að sænski hornamaðurinn Hampus Wanne verður leikmaður liðsins frá og með næsta keppnistímabili. Samningur Wanne við Katalóníuliðið gildir fram á mitt ár 2025. Wanne hefur síðustu árin leikið með Flensburg. Brasilíski...
Fáum á óvart þá mætast Egyptaland og Spánn í úrslitum handknattleikskeppni karla á Miðjarðarhafsleikunum sem standa nú yfir í Alsír en á þeim er keppt í fjölda íþróttagreina. Í kvennaflokki leikur Spánn einnig til úrslita og mætir Króötum. Serbía...
Eftir svekkjandi jafntefli við Noreg í morgun í fyrstu umferð Opna Evrópumótsins kvenna í handknattleik, skipað leikmönnum 16 og yngri, þá beið íslenska landsliðið lægri hlut fyrir landsliði Portúgal í síðari leik sínum í riðlakeppni mótsins síðdegis, 19:16. Portúgalska...
„Æfingamótið í Noregi kom að mínu mati vel út þótt spilamennskan hjá okkur hafi verið upp og ofan. Við vitum betur hvar við stöndum og hvers megi vænta,“ sagði Einar Andri Einarsson annar þjálfara U20 ára landsliðsins í handknattleik...
Ísland tryggði sér sæti á HM karla í handbolta í janúar 2023 og leikir Íslands munu fara fram í Kristianstad í Svíþjóð.
Í tilefni þess stendur til boða 15% afsláttur af flugi milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar.
Ferðatímabilið er 10. janúar 2023 til 18....
Skrifstofa HSÍ byrjaði í dag miðasölu fyrir heimsmeistaramótið í handknattleik karla sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi í janúar 2023. Miðasalan fer í fram í netverslun HSÍ og hófst klukkan 14.
Slóðin í netverslun HSÍ er: https://www.hsi.is/shop/
HSÍ hefur tryggt...