Efsta lið Olísdeildar kvenna, Fram, vann stórsigur á HK, 34:22, á heimavelli í kvöld og heldur þar með áfram að treysta stöðu sína í deildinni. Sex marka munur var á liðunum að loknum fyrri hálfleik, 14:8.
Nýtt þjálfaratreymi var með...
Landslið Íslands og Danmerkur í karlaflokki, skipuð leikmönnum 20 ára og yngri mætast í vináttulandsleik í handknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 20.
Um er að ræða fyrri vináttuleikinn að þessu sinni en sá síðari verður á morgun, laugardag,...
Sigvaldi Björn Guðjónsson landsliðsmaður í handknattleik og leikmaður pólska meistaraliðsins Łomża Vive Kielce hefur ekkert leikið með félagsliði sínu eftir Evrópumeistaramótið í handknattleik. Hásinarmeiðsli sem hafa plagað Sigvalda Björn meira og minna alla leiktíðin versnuðu til muna við álagið...
U-20 ára landslið karla í handknattleik leikur í kvöld og á morgun vináttulandsleiki við Dani á Ásvöllum í Hafnarfirði. Liðin mættust í Danmörku nokkru fyrir áramót og eru Danir að endurgjalda heimsóknina.
Bæði lið eru að búa sig undir Evrópumeistaramót...
Á síðustu dögum og vikum hafa borist fregnir af félagaskiptum handknattleiksfólks sem taka gildi á næsta keppnistímabili. Helst eru það flutningar milli félaga utanlands en einnig frá íslenskum félagsliðum yfir á meginlandið. Til viðbótar eru einnig félagaskipti sem hafa...
Áfram verður leikið í Olísdeild kvenna í kvöld. Efsta lið deildarinnar, Fram, tekur á móti HK sem er í næst neðsta sæti. Nýr þjálfari hefur tekið við HK-liðinu frá því að það lék síðast í deildinni. Arnar Gunnarsson var...
Ágúst Ingi Óskarsson átti stórleik og skoraði 10 mörk þegar lið hans Neistin tapaði fyrir Kyndli, 24:23, í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Felix Már Kjartansson skoraði fjögur mörk og var næst markahæstur liðsmanna Neistans sem er næst...
Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik var að vanda í stóru hlutverki hjá liðinu sínu Kristianstad í kvöld þegar það vann BK Heid, 31:26, á heimavelli í næst síðustu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Andrea skoraði fimm mörk og átti fjórar stoðsendingar
Sigurinn...
Austurríska landsliðið slapp með skrekkinn í kvöld þegar það mætti landsliði Eistlands í fyrri viðureign liðanna í fyrstu umferð undankeppni heimsmeistaramóts karla í handknattleik í Bregenz í Austurríki. Heimamenn náðu að kreista fram tveggja marka sigur, 35:33, eftir að...
ÍBV skoraði fjögur síðustu mörk leiksins við KA/Þór á heimavelli í kvöld og vann mikilvægan sigur, 26:24, í Olísdeild kvenna. Íslandsmeistararnir skoruðu ekki mark síðustu sjö mínútur leiksins. Sunna Jónsdóttir fór hamförum í leiknum, jafnt í vörn sem sókn,...
Örvhenta skyttan efnilega hjá liði Selfoss, Ísak Gústafsson, leikur ekki oftar handknattleik á þessari leiktíð. Hann ristarbrotnaði á æfingu U20 ára landsliðsins í vikunni. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari karlaliðs Selfoss, staðfestir ótíðindin í samtali við Vísir í dag.
Halldór Jóhann...
Guðmundur Þórður Guðmundsson heldur áfram störfum sínum sem landsliðsþjálfari karla í handknattleik. Tilkynnt var fyrir stundu að samstarf hans við Handknattleikssamband Íslands hafi verið framlengt til ársins 2024. Miðað er við Ólympíuleikana í París það sumar.
Með honum verða áfram...
„Áður en Veszprém kom inn í myndina hafði borið á áhuga frá liðum sem eru á svipuðu róli. Þau heilluðu mig ekki. Um leið og Veszprém kom að borðinu þá varð ég strax áhugasamur,“ sagði Bjarki Már Elísson landsliðsmaður...
Áhugasamir um vöxt og viðgang handknattleiks á Íslandi geta nú látið látið í sér heyra og boðið sig fram til stjórnarstarfa því framundan er 65. ársþing Handknattleikssambands Íslands.
Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu HSÍ fer þingið fram laugardaginn 30. apríl...
Gríðarleg ásókn var í landsliðstreyjur HSÍ meðan á Evrópumótinu í handknattleik stóð í janúar og seldust nánar allar treyjur upp. Þó nokkurn tíma hefur tekið að endurnýja lagerinn, sérstaklega vegna erfiðleika með flutninga á treyjunum en nú eru þær...