HK heldur tveggja stiga forskoti í efsta sæti Grill 66-deildar handknattleik kvenna hefur þar með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina á sunnudaginn. HK lagði FH með 10 marka mun í Kaplakrika, 29:19, í kvöld. Sigurinn var afar öruggur og...
Næstsíðasta umferð Grill 66-deildar kvenna verður leikin í kvöld. Töluverð spenna ríkir í toppbaráttunni. HK er efst eftir 17. sigurinn í síðustu umferð á sama tíma og Grótta tapaði fyrir FH á heimavelli. Þar með náði HK tveggja stiga...
Fyrirliði karlaliðs Víkings undanfarin ár, Jóhann Reynir Gunnlaugsson, hefur ákveðið að láta gott heita á handknattleiksvellinum eftir að hafa verið árum saman kjölfesta liðsins. Jóhann Reynir fékk blómvönd eftir síðasta heimaleik Víkings á keppnistímabilinu í síðustu viku auk þess...
Fréttatilkynning frá HSÍ.
HSÍ kynnir nýtt handboltaapp – bylting í aðgengi að íslenskum handbolta
Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) mun á næstu 3-4 vikum gefa út nýtt og öflugt snjallforrit sem ætlað er að gjörbreyta aðgengi að upplýsingum um íslenskan handbolta. Appið er...
Víkingur varð í dag deildarmeistari í Grill 66-deild karla og leikur þar með að öllu forfallalausu í Olísdeildinni á næstu leiktíð. Víkingar lögðu Hauka 2 í hörkuleik á Ásvöllum, 36:34, eftir að hafa verið yfir, 20:18, þegar fyrri hálfleikur...
Eftir þriggja vikna hlé á keppni í Olísdeild kvenna verður þráðurinn tekinn upp í dag með fjórum viðureignum í 19. og þriðju síðustu umferð.Olísdeild kvenna, 19. umferð:Kuehne+Nagel höllin: Haukar - ÍBV, kl. 13.Sethöllin: Selfoss - Stjarnan, kl. 14.N1-höllin: Valur...
Fjölnir lagði Aftureldingu, 26:24, í þriðju síðustu umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik er liðin mættust í Myntkaup-höllinni að Varmá í kvöld. Aftureldingarliðið situr á botni deildarinnar með 11 stig. Fram 2 sem var á sömu slóðum og Aftureldingarliðið...
FH gerði Gróttu skráveifu í toppbaráttu Grill 66-deildar kvenna í handknattleik í kvöld. Skráveifu sem getur reynst Gróttuliðinu slæm í kapphlaupinu við HK um efsta sæti deildarinnar á endasprettinum. FH vann viðureignina við Gróttu með einu marki, 25:24. Thelma...
Tvö efstu lið Grill 66-deildar karla í handknattleik, Víkingur og Grótta, unnu viðureignir sínar í kvöld í næstsíðustu umferð deildarinnar. Þau eru þar með áfram jöfn að stigum í tveimur efstu sætum deildarinnar, hafa 38 stig hvort. Víkingur stendur...
HK komst að minnsta kosti um stundarsakir í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik eftir að hafa lagt Val 2, 31:24, í upphafsleik 19. umferðar sem fram fór í Kórnum í kvöld. Keppinautur HK um efsta sæti deildarinnar,...
Danijela Sara Bokan Björnsdóttir markvörður hefur framlengt samning sinn við HK til næstu tveggja ára.
Danijela Sara hefur vakið mikla athygli sem markvörður og þrátt fyrir ungan aldur staðið á milli stanganna í marki hjá meistaraflokki síðastliðin tvö tímabil. Einnig...
Fjöldi leikja eru á dagskrá í Grill 66 deildum karla og kvenna í kvöld. Alls fara fjórir leikir fram í 21. umferð hjá körlunum og einn í 19. umferð hjá konunum.
Tvö efstu lið Grill deildar karla, Víkingur Reykjavík og...
Víkingur Reykjavík tyllti sér á topp Grill 66 deildar karla með öruggum sigri á Selfossi 2, 39:28, í Safamýri í dag. Valur 2 fékk þá Hörð frá Ísafirði í heimsókn í N1 höllina á Hlíðarenda og vann 33:30.
Víkingur er...
Tinna Ósk Gunnarsdóttir, leikmaður HK, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild HK kemur ekki fram til hve langs tíma hún samdi.
Tinna Ósk verður þó að minnsta kosti áfram samningsbundin HK á næsta tímabili en...
Framarar í liði tvö skoruðu þrjú síðustu mörkin og tryggðu sér sigur á Fjölni, 32:31, í Grill 66-deild karla í handknattleik í gærkvöld. Leikið var í Fjölnishöllinni en um var að ræða aðra viðureign í 20. umferð deildarinnar. Kristófer...