Okkar fólk úti

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fyrstu mörk Hauks í Póllandi

Haukur Þrastarson skoraði sín fyrstu mörk fyrir pólska meistaraliðið Vive Kielce í dag þegar það sótti Zabrze heim og vann auðveldlega, 31:24, eftir að hafa verið með níu marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 19:10. Haukur skoraði tvö mörk í...

Tóku daginn snemma

Leikmenn handknattleikslið Barcelona og BM Nava tóku daginn snemma í dag og mættu til leiks í íþróttahöll Katalóníuliðsins fyrir hádegið. Þar með hófst þriðja umferð spænsku 1. deildarinnar sem lýkur síðdegis. Barcelona ber höfuð og herðar yfir önnur lið...

Geta sofnað með sigurbros á vör

Íslensku handknattleiksmennirnir þrír sem léku með liðunum sínum í kvöld í norsku úrvalsdeildinni geta farið með sigurbros á vör inn í draumalandið eftir góða sigra á andstæðingum sínum. Ólafur Andrés Guðmundsson, fyrirliði IFK Kristianstad, skoraði fjögur mörk og Teitur...
- Auglýsing -

Stórleikur Elínar Jónu dugði ekki til

Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti afbragðsleik í marki nýliða Vendsyssel þegar liðið tapaði fyrir bikarmeisturum Herning-Ikast í fimmtu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld, 20:18. Leikið var á heimavelli Herning-Ikast. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 12:10, heimaliðinu í...

Loks sigur hjá Íslendingatríói

Leikmenn Ribe-Esbjerg gátu loks fagnað sigri í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar þeir lögðu leikmenn Lemvig, 33:30, á útivelli í fjórðu umferð deildarinnar. Lemvig var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:15, en Ribe-Esbjerg tókst að snúa við taflinu...

Elliði Snær skoraði þrjú – Eggert ætlar að hætta

Eyjamaðurin Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk þegar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, tapaði fyrir Melsungen í æfingaleik, 30:25. Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar Melsungen. Arnar Freyr Arnarsson lék með Melsungen en náði ekki að skora mark.  Danski hornamaðurinn...
- Auglýsing -

Fimm marka sigur í Zaporozhye

Spænska meistaraliðið Barcelona byrjaði keppnistímabilið í Meistaradeild karla með öruggum sigri á úkraínska liðinu MotorZaporozhye, 30:25, en leikið var í Úkraínu í kvöld. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona í leiknum en liðið var með tveggja marka forskot...

Óðinn og félagar unnu toppslag

Team Tvis Holstebro, lið Óðins Þórs Ríkharðssonar, varð fyrst liða til þess að leggja Skanderborg Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik á þessari leiktíð þegar liðin mættust á heimavelli TTH í kvöld, lokatölur, 34:27. TTH var fjórum mörkum yfir...

Bjarki skoraði, Arnór ekki með og áhorfendur

Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður, var markahæstur hjá Lemgo með sex mörk þegar liðið vann 2. deildarlið Hamm-Westfalen, 31:22, í æfingaleik í gærkvöld á útivelli. Lemgo var fimm mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 15:10. Liðið skoraði fjögur fyrstu mörk...
- Auglýsing -

Kohlbacher, Hörður, Birta og Sara Dögg

Jannik Kohlbacher, línumaðurinn sterki hjá Rhein-Neckar Löwen og þýska landsliðinu er meiddur á hægri olnboga og óttast Martin Schwalb, þjálfari liðsins, að Kohlbacher gæti orðið frá keppni um skeið og þar af leiðandi misst af fyrstu leikjum liðsins í...

Góður sigur hjá Arnóri en naumt tap í Flensborg

Íslendingar voru í eldlínunni í kvöld þegar keppni hófst í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Danska meistaraliðið Aalborg Håndbold, þar sem Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari, vann sætan sigur á Celje Lasko í B-riðli keppninnar, 31:29, en leikið var í Celje...

Óskar og Viktor drjúgir hjá Drammen

Óskar Ólafsson, og hinn hálf íslenski Viktor Petersen Norberg, voru atkvæðamiklir að vanda hjá norska úrvalsdeildarliðinu Drammen í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við  FyllingenBergen, 29:29, á heimavelli. Björgvinjarbúar voru tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:11. Óskar...
- Auglýsing -

Elvar áfram – Sveinn úr leik

Elvar Örn Jónsson og samherjar hans í Skjern tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar með því að leggja SönderjyskE, 32:27, á heimavelli síðarnefnda liðsins. Sveinn Jóhannsson skoraði tvö af mörkum heimaliðsins sem tapaði eftir...

Fjórir Íslendingar en 44 Frakkar

Alls eru handknattleiksmenn af 28 þjóðernum í liðunum 16 í Meistaradeild karla í handknattleik á keppnistímabilinu. Þar af eru fjórir Íslendingar, Aron Pálmarsson hjá Barcelona, Haukur Þrastarson og Sigvaldi Björn Guðjónsson með Vive Kielce og Stefán Rafn Sigurmannsson hjá...

Íslendingar í eldlínunni þegar þau bestu mætast

Keppni hefst í Meistaradeild Evrópu í karlaflokki í kvöld en um síðustu helgi var flautað til leiks í Meistaradeild kvenna eins og ítarlega hefur verið greint frá á handbolti.is. Þar með verða bestu handknattleikslið Evrópu komin á fulla ferð,...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -