Sandra Erlingsdóttir var valin maður leiksins þegar EH Aalborg vann Lyngby í dönsku B-deildinni á laugardaginn, 27:18. Sandra hefur leikið afar vel með liðinu í fyrstu leikjum þess á keppnistímabilinu.
Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik nýtti tækifærið vel þegar hann...
Arnar Gunnarsson og lærisveinar hans í Neista unnu stórsigur á STÍF, 37:26 í öðrum leik liðsins í færeysku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í gær en leikið var í Höllinni á Hálsi í Þórshöfn. Neistin hefur þar með fjögur stig...
„Það er alltaf gott að sigra þrátt fyrir að spilamennska okkar hafi alls ekki verið frábær,“ sagði Díana Dögg Magnúsdóttir þegar handbolti.is heyrði stuttlega í henni eftir að lið hennar BSV Sachsen Zwickau vann Wuppertal, 27:24, á útivelli í...
Kadetten Schaffhausen, svissneska meistaraliðið sem Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar, vann í gær toppslaginn í svissnesku úrvalsdeildinni þegar liðið mætti Pfadi Winterthur, 37:35, á heimavelli. Kadetten er eitt í efsta sæti deildarinnar með 8 stig að loknum fjórum leikjum.
Daníel Freyr Andrésson...
Íslensku landsliðsmennirnir í handknattleik Elvar Örn Jónsson og Viktor Gísli Hallgrímsson mættust í dönsku úrvalsdeildinni í gær með liðum sínum, Skjern frá Jótlandi og GOG frá Fjóni í Skjern Bank Arena að viðstöddum 400 áhorfendum.
Jafntefli varð niðurstaðan, 31:31,...
Ekkert lát er á sigurgöngu Söndru Erlingsdóttur og samherja í danska B-deildarliðinu EH Aalborg en í gær vann liðið níu marka sigur á Lyngby, 27:18, á heimavelli eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:9.
Sandra,...
Haukur Þrastarson stimplaði sig inn í pólsku úrvalsdeildina í gær þegar hann skoraði sín fyrstu mörk fyrir meistaraliðið Vive Kielce. Annað markið sem Haukur skoraði í leiknum er sérlega glæsilegt. Með því að smella á örina hér fyrir neðan...
Haukur Þrastarson skoraði sín fyrstu mörk fyrir pólska meistaraliðið Vive Kielce í dag þegar það sótti Zabrze heim og vann auðveldlega, 31:24, eftir að hafa verið með níu marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 19:10.
Haukur skoraði tvö mörk í...
Leikmenn handknattleikslið Barcelona og BM Nava tóku daginn snemma í dag og mættu til leiks í íþróttahöll Katalóníuliðsins fyrir hádegið. Þar með hófst þriðja umferð spænsku 1. deildarinnar sem lýkur síðdegis.
Barcelona ber höfuð og herðar yfir önnur lið...
Íslensku handknattleiksmennirnir þrír sem léku með liðunum sínum í kvöld í norsku úrvalsdeildinni geta farið með sigurbros á vör inn í draumalandið eftir góða sigra á andstæðingum sínum.
Ólafur Andrés Guðmundsson, fyrirliði IFK Kristianstad, skoraði fjögur mörk og Teitur...
Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti afbragðsleik í marki nýliða Vendsyssel þegar liðið tapaði fyrir bikarmeisturum Herning-Ikast í fimmtu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld, 20:18. Leikið var á heimavelli Herning-Ikast. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 12:10, heimaliðinu í...
Leikmenn Ribe-Esbjerg gátu loks fagnað sigri í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar þeir lögðu leikmenn Lemvig, 33:30, á útivelli í fjórðu umferð deildarinnar. Lemvig var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:15, en Ribe-Esbjerg tókst að snúa við taflinu...
Eyjamaðurin Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk þegar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, tapaði fyrir Melsungen í æfingaleik, 30:25. Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar Melsungen. Arnar Freyr Arnarsson lék með Melsungen en náði ekki að skora mark.
Danski hornamaðurinn...
Spænska meistaraliðið Barcelona byrjaði keppnistímabilið í Meistaradeild karla með öruggum sigri á úkraínska liðinu MotorZaporozhye, 30:25, en leikið var í Úkraínu í kvöld. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona í leiknum en liðið var með tveggja marka forskot...
Team Tvis Holstebro, lið Óðins Þórs Ríkharðssonar, varð fyrst liða til þess að leggja Skanderborg Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik á þessari leiktíð þegar liðin mættust á heimavelli TTH í kvöld, lokatölur, 34:27.
TTH var fjórum mörkum yfir...