- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís karla

- Auglýsing -

Dagskráin: Tveir leikir í Olísdeild og þrír í Grill 66

Tveir leikir fara fram í Olísdeild karla í handknattleik, 12. umferð, í kvöld. Framarar fá Íslandsmeistara FH í heimsókn í Lambhagahöllina. HK tekur á móti Stjörnunni í Kórnum. Báðir leikir hefjast klukkan 19.30.FH vann Fram í fyrri viðureign liðanna...

KA hafði sætaskipti við Gróttu – ÍR úr fallsæti

KA færðist upp í áttunda sæti Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld eftir öruggan sigur á Gróttu, 29:23, í uppgjöri liðanna í áttunda og níunda sæti í KA-heimilinu. Þar með höfðu liðin sætaskipti. Hvort lið hefur níu stig eftir...

Dagskráin: Fjögur af fimm neðstu liðunum mætast

Tólftu umferð Olísdeildar karla verður framhaldið í kvöld með tveimur viðureignum. Umferðin hófst á þriðjudaginn með viðureign Aftureldingar og Hauka, hálfum sólarhring áður en Hafnarfjarðarliðið lagði af stað til Aserbaísjan vegna leikja í Evrópubikarkeppninni. Haukar unnu, 29:26.Fjögur af fimm...
- Auglýsing -

Baráttusigur Hauka að Varmá

Haukar báru sigur úr býtum gegn Aftureldingu, 29-26, að Varmá í kvöld í fyrsta leik tólftu umferðar Olísdeildar karla. Staðan í hálfleik var 14-13, gestunum úr Hafnarfirði í vil. Fyrir leikinn var Afturelding í 2. sæti deildarinnar með 17...

Dagskráin: Varmá, Ísafjörður og Evrópuleikur

Tólfta umferð Olísdeildar karla hefst í kvöld að Varmá þegar leikmenn Hauka koma í heimsókn til Aftureldingar. Leiknum er flýtt vegna ferðar Hauka til Aserbaísjan þar sem fyrir þeim liggur að mæta Kur í borginni Mingachevir á laugardag og...

Baldur Fritz er tíu mörkum fyrir ofan næsta mann þegar deildin er hálfnuð

Þegar keppni í Olísdeild karla er hálfnuð, 11 umferðir eru að baki og 11 eftir, er ÍR-ingurinn ungi, Baldur Fritz Bjarnason markahæstur með 92 mörk í 11 leikjum, eða liðlega átta mörk að jafnaði í leik.Línumaður Gróttu, Jón...
- Auglýsing -

FH og Afturelding efst þegar deildin er hálfnuð – HK og KA lyftu sér af botninum

FH og Afturelding sitja áfram efst og jöfn í Olísdeild karla í handknattleik eftir að bæði lið unnu andstæðinga sína í kvöld. FH vann stórsigur á ÍR, 41:24, á heimavelli ÍR í Skógarseli á sama tíma og Afturelding lagði...

Dagskráin: Fimm leikir í 11. umferð

Fimm síðustu leikir 11. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik fara fram í kvöld. Leikmenn Fram og Stjörnunnar hófu umferðina í gærkvöld í Lambhagahöllinni. Fram vann öruggan sigur, 35:26, og jafnaði FH og Aftureldingu að stigum á toppnum.Olísdeild karla, 11....

Arnór Máni fór hamförum – Fram áfram á sigurbraut

Fram færðist upp að hlið FH og Aftureldingar með 15 stig í einu af þremur efstu sætum Olísdeildar karla í handknattleik með sannfærandi sigri á Stjörnunni í Lambhagahöllinni, 35:26, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 18:12.Arnór...
- Auglýsing -

Kári Kristján úrskurðaður í tveggja leikja bann

Kári Kristján Kristjánsson leikmaður ÍBV hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja keppnisbann hjá aganefnd HSÍ vegna leikbrots í viðureign Hauka og ÍBV í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins í handknattleik karla. Frá þessu segir í úrskurði aganefndar sem birtur var í...

Dagskráin: Framarar fá Stjörnumenn í heimsókn

Ellefta umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með viðureign Fram og Stjörnunnar. Flautað verður til leiks í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal, heimavelli Fram, klukkan 20.Fram er í fjórða sæti Olísdeildar með 13 stig, er tveimur stigum á eftir...

Berjast – hlaðvarp: Óskar leggur spilin á borðið

Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik er nýjasti viðmælandi í nýju hlaðvarpi Arnars Guðjónssonar og Hilmars Árna Halldórssonar; berjast. Hlaðvarpið snýr að mismunandi hliðum þjálfunar. Óskar Bjarni talar einmitt um í þessum þætti um muninn á því...
- Auglýsing -

Fjórir sleppa við bann en meint brot Kára er til skoðunar

Útilokanir þær sem Andri Fannar Elísson leikmaður Hauka, Pavel Miskevich leikmaður ÍBV og Skarphéðinn Ívar Einarsson leikmaður Hauka hlutu í leik Hauka og ÍBV í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins á síðasta sunnudag leiða ekki til þess að þeir voru úrskurðaðir...

Tíu marka sigur Vals sem situr á ný í þriðja sæti

Valur átti ekki í erfiðleikum með HK í lokaleik 10. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Valsliðið vann með 10 marka mun, 33:23, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 15:9. Fljótlega...

Dagskráin: HK-ingar sækja Valsmenn heim og fleira

Síðasti leikur 10. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik fer fram í kvöld þegar Valur og HK mætast á Hlíðarenda klukkan 19.30. Takist Val að vinna leikinn fer liðið á ný upp í þriðja sæti deildarinnar og verður einu stigi...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -