Olís karla

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Daníel Örn er sagður vera á leiðinni til Víkinga

Eyjamaðurinn Daníel Örn Griffin er að ganga til liðs við nýliða Víkings í Olísdeild karla, aðeins þremur vikum áður en flautað verður til leiks í Olísdeild karla. Frá þessu segir Arnar Daði Arnarsson fyrrverandi þjálfari Gróttu og nú ritstjóri...

Skemmtilegt verkefni með viljugum hópi leikmanna

„Vissulega verður það vinna að koma saman liðinu eftir miklar breytingar en ég vissi þegar ég fékk leikmennina til Gróttu að þar væru á ferðinni mjög viljugir piltar sem eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar,“ sagði Róbert Gunnarsson...

Einar Örn endurnýjar samning sinn í Krikanum

Einar Örn Sindrason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild FH og þar með klár í slaginn í Olísdeildinni á næstu leiktíð. „Einar Örn, sem hefur leikið allan sinn feril í FH treyjunni, hefur fengið aukna ábyrgð í...
- Auglýsing -

Verðum með góða blöndu leikmanna í vetur

„Okkur gengur nokkuð vel við undirbúninginn. Við erum að koma nýjum mönnum inn í leikinn og slípa okkur saman,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari karlaliðs Aftureldingar í handknattleik í samtali við handbolta.is.Afturelding varð bikarmeistari á síðasta keppnistímabili, hafnaði í 5....

Molakaffi: Víkingur, Haukar, Makuc, Solberg, uppselt, Benfica

Víkingur lagði Hauka í æfingaleik í handknattleik karla í Safamýri í gær, 31:30. Haukar sem voru án Stefáns Rafns Sigurmannssonar og Þráins Orri Jónssonar, voru þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:13. Þetta var þriðji æfingaleikur Víkinga á skömmum...

Árni Bragi innsiglaði sigurinn í Hertzhöllinni

Árni Bragi Eyjólfsson tryggði Aftureldingu sigur á Gróttu í UMSK-mótinu í handknattleik karla í viðureign liðanna í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í kvöld, 30:29. Sigurmarkið skoraði Árni Bragi fjórum sekúndum fyrir leikslok en aðeins fimm sekúndum áður hafði Jakob Ingi...
- Auglýsing -

Dagskráin: Gróttumenn taka á móti Mosfellingum

Áfram verður haldið keppni á UMSK-móti karla í handknattleik í kvöld. Að þessu sinni mæta Gróttumenn til leiks á heimavelli sínum og taka móti Aftureldingu. Flautað verður til leiks klukkan 19.30 í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi.Um er ræða fyrsta leik...

Vonast til að Reynir Þór hafi ekki handarbrotnað

Vonir standa til þess að Reynir Þór Stefánsson leikmaður Fram og U19 ára hafi ekki handarbrotnað í næst síðustu viðureign U19 ára landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Króatíu. Reynir Þór lék vaxandi hlutverk með Fram á síðasta keppnistímabili. Eftir að hafa...

Aron var öflugur þegar FH hafði betur gegn Val

FH vann Val í æfingaleik í Kaplakrika á föstudaginn, 30:22. Aron Pálmarsson lék með og var afar öflugur sem undirstrikar enn einu sinni hversu mikill hvalreki heimkoma Arons verður, bæði fyrir FH og Olísdeildina. Nokkuð vantaði þó upp á...
- Auglýsing -

Bikarmeistararnir hafa fengið Jakob að láni

Bikarmeistarar Aftureldingar í handknattleik karla hafa fengið Jakob Aronsson línumann úr Haukum að láni. Jakob lék sinn fyrsta opinbera leik með Aftureldingu á fimmtudaginn gegn HK í UMSK-mótinu. Skoraði hann þrjú mörk og féll vel að leik Aftureldingar, að...

Stjarnan hóf UMSK-mótið á sigurleik

Leikmenn HK og Stjörnunnar tóku daginn snemma í dag og mættust á UMSK-mótinu í handknattleik karla í Kórnum fyrir hádegið. Eftir hörkuleik þá voru Stjörnunmenn sterkari og unnu með þriggja marka mun, 30:27, eftir að hafa verið marki yfir...

Afturelding og Stjarnan unnu fyrstu leiki UMSK-mótsins

Stjarnan og Afturelding unnu leiki sína í fyrstu umferð UMSK-móts kvenna og karla sem hófst í kvöld í Kórnum í Kópavogi. Stjarnan og HK riðu á vaðið kvennahluta mótsins en bikarmeistarar Aftureldingar sóttu nýliða Olísdeildar karla, HK, heim og...
- Auglýsing -

Nökkvi Snær verður um kyrrt

Vinstri hornamaðurinn Nökkvi Snær Óðinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara ÍBV í handknattleik.Nökkvi Snær uppalinn Eyjamaður. Hann skoraði 30 mörk fyrir ÍBV í deildarkeppni og úrslitakeppni Olísdeildar karla á síðasta keppnistímabili. „Nökkva þekkjum við öll enda einn mesti ÍBV-ari...

Lúðvík skrifar undir tveggja ára samning

Lúðvík Thorberg Arnkelsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild Gróttu. Hann er fæddur árið 1997 og kom til félagsins fyrir þremur árum frá Fram. Lúðvík getur bæði leikið sem skytta og leikstjórnandi. Hann var talsvert frá keppni...

Gróttumenn semja við afmælisbarn dagsins

Handknattleiksdeild Gróttu hefur samið við japanska markvörðinn Shuhei Narayama um að leika með liðinu á næstu leiktíð. Narayama er 27 ára gamall og kemur frá félaginu Wakunaga Leolic í Japan. Hann er 196 cm á hæð. Grótta hefur verið með...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -