- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olís karla

- Auglýsing -

Elín Klara og Benedikt Gunnar best í Olísdeildum

Benedikt Gunnar Óskarsson, Val, og Elín Klara Þorkelsdóttir úr Haukum, voru valin besta handknattleiksfólk Olísdeildar á nýliðinni leiktíð. Uppskerhóf HSÍ fór fram í hádeginu í dag þar sem þau ásamt fleirum tóku við viðurkenningum fyrir árangur sinn á tímabilinu....

Haraldur Björn tekur slaginn með Fjölni – Aron Breki framlengdi

Haraldur Björn Hjörleifsson, ungur og efnilegur handknattleiksmaður úr Aftureldingu hefur ákveðið að taka slaginn með Fjölni í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Haraldur Björn lék með Fjölni sem lánsmaður frá Aftureldingu síðari hluta síðustu leiktíðar og virðist hafa líkað...

Jóhann Geir hjá KA til 2026

Jóhann Geir Sævarsson skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er þar með samningsbundinn félaginu út tímabilið 2025-2026. Jóhann Geir er 25 ára gamall vinstri hornamaður sem er uppalinn hjá KA og hefur hann leikið...
- Auglýsing -

Kominn heim í Fjölni eftir tveggja ára vist hjá Stjörnunni

Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson hefur gengið til liðs við Fjölni á nýjan leik eftir tveggja ára dvöl hjá Stjörnunni. Aðalsteinn er uppalinn Fjölnismaður sem ætlar sér að taka slaginn með uppeldisfélaginu sínu í Olísdeildinni á næsta keppnistímabili. Fjölnir vann sér...

Tómas er orðinn HK-ingur

Olísdeildarliðið HK hefur krækt í Tómas Sigurðarson hornamann úr Val eftir því fram kemur í tilkynningu frá handknattleiksdeild HK í kvöld.Tóams er á 22. ári og leikur í vinstra horni. Hann er 196 sentimetrar á hæð og hefur gert...

Einar Baldvin er kominn í Mosfellsbæ

Silfurlið Íslandsmótsins í handknattleik karla, Afturelding, hefur krækt í markvörðinn Einar Baldvin Baldvinsson frá Gróttu eftir því sem fram kemur í tilkynningu í kvöld. Einar Baldvin leysir af hólmi Jovan Kukobat sem kveður félagið eftir tveggja ára dvöl. Einar Baldvin...
- Auglýsing -

Andri Snær mætir til leiks á ný í Olísdeildina

Andri Snær Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá KA á næsta handboltavetri og kemur þar með inn í teymið hjá Halldóri Stefáni Haraldssyni aðalþjálfara liðsins. Andri Snær er þrautreyndur þjálfari og leikmaður. Skemmst að minnast þess að...

Bjarki Steinn verður áfram hjá ÍR

Bjarki Steinn Þórisson hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2026. Hann mætir þar með galvaskur til leiks með ÍR í haust þegar liðið hefur leik í Olísdeildinni eftir að hafa tryggt sér sæti í deildinni í...

Gunnar Steinn ráðinn þjálfari Fjölnis

Gunnar Steinn Jónsson, fyrrverandi atvinnumaður í handknattleik, hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Fjölnis í handknattleik. Fjölnir vann sér í vor sæti í Olísdeild karla eftir sigur á Þór í fimm leikjum í umspili. Tilkynnt var um ráðningu Gunnars í...
- Auglýsing -

Kristján Ottó er orðinn liðsmaður Aftureldingar

Aftureldingarmenn slá ekki slöku við á kjördag frekar en aðra daga. Þeir tilkynntu undir kvöld að samið hafi verið línumanninn Kristján Ottó Hjálmsson. Hann kemur til félagsins frá HK í Kópavogi hvar hann hefur leikið fram til þessa. Kristján Ottó...

Tveir Færeyingar styrkja lið Aftureldingar

Afturelding hefur skrifað undir samninga við tvo færeyska handknattleiksmenn, Sveinur Ólafsson og Hallur Arason sem ganga til liðs við félagið í sumar. Sveinur lék síðast með landsmeisturunum H71 í Hoyvik en Hallur er frá Vestmanna. Sveinur Ólafsson er 21 árs...

„Við látum ekki staðar numið núna“

„Við stefndum á að verða Íslands- og deildarmeistarar en það var að sjálfsögðu ekkert sjálfgefið þótt liðið væri vel mannað. Við erum því mjög ánægðir og ég persónulega afar sáttur við hvað strákarnir voru tilbúnir að leggja hart að...
- Auglýsing -

Stoltur yfir að hafa orðið meistari með þessu snillingum

„Ég er hrikalega stoltur yfir að hafa unnið titilinn með þessum snillingum í liðinu,“ sagði Einar Bragi Aðalsteinsson nýbakaður Íslandsmeistari með FH í samtali við handbolta.is í gær. Einar Bragi kveður FH-liðið í sumar eftir tveggja ára „þroskaferli“ eins...

Draumendir á tímabilinu

„Þetta er stórkostlegt,“ sagði Jóhannes Berg Andrason einn af mörgum leikmönnum FH sem varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í gærkvöld þegar liðið lagði Aftureldingu í þriðja sinn í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn að Varmá. Jóhannes Berg gekk til liðs við...

Myndasyrpa: Meistarafögnuður FH-inga

Skiljanlega var kátt á hjalla þegar FH-ingar unnu Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í 17. skipti í gærkvöld. FH lagði Aftureldingu í þrjú skipti í fjórum viðureignum úrslitarimmunnar. Smiðshöggið var rekið að Varmá með fjögurra marka sigri í gærkvöld, 31:27....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -