Útlönd

- Auglýsing -

Sneri til baka eftir tveggja ára þrautagöngu

Norski landsliðsmaðurinn Gøran Johannessen sneri til baka út á leikvöllinn með Kolstad síðasta laugardag eftir nærri tveggja ára fjarveru vegna meiðsla og fylgikvilla. Í apríl 2024, rétt fyrir forkeppni Ólympíuleikanna, slitnaði hásin hans á æfingu. Fjórum mánuðum síðar slitnaði hún...

Spenna í B-riðli – hreinni línur í A-riðli

Næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í handbolta 2025/26 lauk á sunnudag. Í A-riðli tryggði Metz Handball sér sæti í 8-liða úrslitum eftir sigur á BV Borussia Dortmund. Evrópumeistarar Györ hafa fyrir nokkru tryggt sér efsta sæti riðilsins og sæti...

Molakaffi: Pekeler, Dahl, Mortensen, Beyer

Þýski línumaðurinn Hendrik Pekeler hefur framlengt samning sinn við THW Kiel til eins árs, fram á mitt árið 2027. Pekeler, sem er 34 ára gamall, sleit hásin undir lok síðasta keppnistímabil og byrjaði þar af leiðandi ekki leika á...
- Auglýsing -

Óvænt þjálfaraskipti hjá efsta liði þýsku deildarinnar

Fremur óvænt þjálfaraskipti verða hjá þýska handknattleiksliðinu Borussia Dortmund eftir leiktíðina. Kay Rothenpieler tekur við þjálfun liðsins sem er í efsta sæti þýsku 1. deildarinnar og er auk þess komið í undanúrslit bikarkeppninnar. Rothenpieler leysir af hólmi Henk Groener sem...

Íslendingaliðið reiðir fram háa fjárhæð fyrir markvörðinn knáa

Íslendingalið SC Magdeburg mun samkvæmt þýskum miðlum festa kaup á króatíska markverðinum Dominik Kuzmanovic frá öðru Íslendingaliði, VfL Gummersbach, í sumar. Sport Bild greinir frá því að upphæðin sem Magdeburg reiðir fram verði dágóð. Kuzmanovic mun mynda markvarðapar með landa...

Sögulegt hjá Gidsel, Reistad og Costa

Alþjóðahandknattleikssambandið, IFH, tilkynnti í dag að Daninn Mathias Gidsel hafi verið kjörinn besti handknattleikskarl heims árið 2025. Er þetta þriðja árið í röð sem Gidsel hlýtur nafnbótina. Engum leikmanni hafði áður tekist að vinna til verðlaunanna þrjú ár í...
- Auglýsing -

Evrópumeistarinn argur yfir brjósklosi

Rasmus Lauge, sem varð Evrópumeistari með Danmörku fyrr í mánuðinum, hefur misst af fyrstu tveimur leikjum Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir EM-pásu þar sem hann er að glíma við meiðsli í baki. Lauge, sem er 34 ára leikstjórnandi og sterkur...

Palicka hæstánægður með að gerast lærisveinn Rúnars – fer til Berlínar í sumar

Þýska félagið HSG Wetzlar hefur tilkynnt formlega um komu sænska markvarðarins Andreas Palicka frá norska félaginu Kolstad. Palicka fékk samningi sínum í Noregi rift og samdi út yfirstandandi tímabil hjá Wetzlar, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Um leið...

Framtíð landsliðsþjálfara í höndum matsnefndar

Norska handknattleikssambandið hefur hóað saman í nefnd sem á að vega og meta starf Jonas Wille landsliðsþjálfara karla síðustu fimm ár. Samningur Wille rennur út í vor. Ekki verður tekin ákvörðun um hvort honum verði boðinn nýr samningur eða...
- Auglýsing -

Molakaffi: Martín, Gomes, Søndenå, Simic

Ambros Martín þjálfari spænska kvennalandsliðsins í handknattleik hefur tekið að sér að þjálfa Al-Duhail í Doha í Katar. Martín hefur fram til þess þjálfað kvennalið, s.s. ungverska liðið Györi og Rostov-Don í Rússlandi auk þess að þjálfa kvennalandsliðs Rússlands...

Glíma enn við afleiðingar Covid-19

Þótt kórónuveirufaraldurinn, Covid-19, og fregnir af honum séu hættar að tröllríða fréttum þá glíma margir við afleiðingar faraldurs, jafnt fólk sem fyrirtæki. Eitt þeirra er þýska handknattleiksliðið Wölfe Würzburg sem um þessar mundir leikur í 3. deild en það...

Spánverjinn entist stutt í starfi í Serbíu

Spánverjanum Jose Ignacio Prades entist stutt í starfi landsliðsþjálfara Serbíu í kvennaflokki í handknattleik. Hann var ráðinn í ágúst á síðasta ári og lagði upp með göfug markmið og uppbyggingu á kvennalandsliði sem mátti muna sinn fífil fegri þegar...
- Auglýsing -

Knorr glímir við meiðsli

Juri Knorr, einn helsti lykilmaður Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu, gat ekki tekið þátt í fyrsta leik Aalborg Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni eftir að Evrópumótinu lauk fyrr í mánuðinum. Knorr glímir við hnémeiðsli. Fjarvera hans kom þó ekki að sök...

Bjóða upp á frían bjór fyrir hvert unnið stig

Karlalið TBV Lemgo Lippe hefur í samstarfi við fimm styrktaraðila sína ákveðið að bjóða stuðningsmönnum upp á fría drykki fyrir hvert stig sem liðið vinnur það sem eftir lifir tímabils. Lemgo hefur verið sannkallað spútniklið á tímabilinu þar sem það...

Spánverjinn tekur einnig við félagsliði í Serbíu

Raúl González, spænskur þjálfari karlaliðs Serbíu, mun taka við stjórnartaumunum hjá serbneska félaginu RK Partizan fyrir næsta tímabil. RK Partizan tilkynnti um ráðninguna á González í dag, þar sem kom um leið fram að Đorđe Ćirković muni láta af störfum...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -