Norðmaðurinn Simen Lyse gengur til liðs við franska stórliðið PSG frá Kolstad í Noregi að Evrópumótinu í Danmörku, Noregi og Svíþjóð loknu. Upphaflega stóð til að Lyse færi til PSG í sumar.
Hinir ýmsu miðlar á Norðurlöndum höfðu greint frá því að þetta stæði til og hefur PSG nú staðfest tíðindin.
Lyse er 25 ára vinstri skytta sem er markahæstur hjá Kolstad í norsku úrvalsdeildinni á tímabilinu með 46 mörk en þau verða ekki fleiri, að minnsta kosti að sinni.
Áhættan of mikil
Kolstad á í miklum fjárhagsvandræðum og því var tilboði PSG í Lyse tekið. Óvissa ríkir um framhaldið hjá norska félaginu þar sem það á erfitt með að standa við gerða samninga.
„Markmið mitt var að halda kyrru fyrir hjá Kolstad til loka tímabilsins og binda endi á ágætlega langan feril minn þar á viðeigandi máta.
Það var mín ósk. En eftir allt sem er á undan gengið virðist áhættan vera of mikil. Maður veit ekki hvað gerist á næstu mánuðum,“ sagði Lyse við Handball World.
Sigvaldi beðinn um að taka á sig launalækkun
Nokkrir lykilmanna liðsins hafa verið beðnir um að taka á sig launalækkun, Lyse var einn þeirra áður en gengið var frá skiptunum til PSG, og er Sigvaldi Björn Guðjónsson sömuleiðis einn þeirra leikmanna.
Hann hefur ekki samþykkt launalækkun en sagði í samtali við Handkastið:
„Ég get staðfest þau tíðindi að ég hef ekki náð samkomulagi við Kolstad í þessu máli. Sú vinna er í gangi og framhaldið er því óljóst. Ég get ekkert sagt til um það hvað gerist en vonandi skýrist þetta sem fyrst.“



