Mathias Gidsel, besti leikmaður heims undanfarin þrjú ár að mati Alþjóðahandknattleikssambandsins, er kominn vel á veg með að slá markamet landa síns Mikkel Hansen í Meistaradeild Evrópu.
Hansen skoraði á sínum tíma 141 mark á einu tímabili með PSG en Gidsel er þegar búinn að skora 120 mörk þegar félagslið hans Füchse Berlín er komið í átta liða úrslit keppninnar.
Komist Füchse Berlín áfram í undanúrslit aukast líkurnar vitanlega á því að Gidsel slái metið. Hann komst raunar mjög nálægt því á síðasta tímabili en fékk rautt spjald snemma leiks í undanúrslitum Meistaradeildarinnar og skoraði því ekki mörg mörk í þeim leik.
Gidsel skoraði þá 135 mörk, sem eru næstflest mörk sem leikmaður hefur skorað á einu tímabili í Meistaradeildinni.



