- Auglýsing -
Fjögur bestu lið Meistaradeildar kvenna er klár í að berjast í dag um sigurlaunin í keppninni fyrir framan 20.000 áhorfendur í MVM Dome höllinni í Búdapest.
Eftir sárt tap fyrir Brest í undanúrslitum í fyrra er ungverska liðið Györ komið tvíeflt til baka. Györ hefur unnið Meistaradeildina fimm sinnum. Liðið mætir Esbjerg sem hefur aðeins tapað einum leik í Meistarardeildinni á þessu tímabili.
Í hinum undanúrslitaleiknum eigast við franska liðið Metz og norska liðið Vipers, sem er ríkjandi meistarar. Þessi lið voru saman í riðlakeppninni þar sem franska liðið vann báða leikina og verður spennandi að sjá hvort þeirra hefur betur í þriðja leiknum.
Györ – Esbjerg | Laugardagur kl 13.15 | Beint á EHFTV
- Györ er að taka þátt í Final4 í sjöunda sinn en liðið hefur unnið Meistaradeildina fjórum sinnum.
- Esbjerg hefur leikið 56 leiki í Meistaradeildinni og tekur nú þátt í Final4 í fyrsta skipti.
- Ungverska stórliðið er með bestu sóknina í Meistaradeildinni með 32,9 mörk að meðaltali í leik og fengið á sig 24,8 mörk að jafnaði í leik.
- Henny Reistad sem var valin mikilvægasti leikmaður Final4 í fyrra er markahæst í liði Esbjerg á þessari leiktíð með 86 mörk. Stine Oftedal er markahæst hja Györ með 54 mörk.
- Enginn leikmaður hefur skorað fleiri mörk að meðaltali í leik í Final4 heldur en Henny Reistad. Hún skoraði 30 mörk í fjórum leikjum.
- Liðin hafa aðeins mæst tvisvar sinnum áður og hafði Györ betur í bæði skipti.
Metz – Vipers | Laugardagur kl 16.00 | Beint á EHFTV
- Vipers er fyrsta norska liðið sem tekst að komast í Final4 þrjú ár í röð. Liðið lenti í þriðja sæti tímabilið 2018/19 og vann síðan Meistaradeildina á síðasta ári.
- Metz er að taka þátt í Final4 í annað skipti. Liðið hafnaði í fjórða sæti 2019 eftir að hafa tapað fyrir Rostov og Vipers.
- Noru Mørk vantar aðeins 14 mörk til þess að jafna metin við Cristinu Neagu sem er markahæst í Meistaradeildinni á leiktíðinni með 96 mörk.
- Metz var eina liðið af þessum fjórum sem þurfti að fara í útsláttarkeppnina en hin þrjú liðin fóru beint í 8-liða úrslit.
- Ríkjandi meistarar hafa aðeins tvisvar sinnum unnið undanúrslitaleik árið eftir. Það gerði Györ 2018 og 2019. Þrívegis hefur ríkjandi meisturum ekki lánast að verja titilinn.
- Þessi lið hafa mæst tvisvar sinnum á núverandi keppnistímabil og vann franska liðið í bæði skipti.
- Auglýsing -