Skráning er hafin á hinar geysivinsælu handboltabúðir á Laugarvatni. Undanfarin ár hefur selst upp á námskeiðið á örfáum vikum og því mikilvægt að tryggja sér sæti sitt sem allra fyrst.
Íþróttaakademía Íslands stendur fyrir handboltabúðum á Laugarvatni dagana 8.- 11. júlí 2025 fyrir krakka fædda 2010 – 2014.
Á þessu fjögurra daga námskeiði er gist í þrjár nætur á heimavistinni á Laugarvatni með fullu fæði.
Æft er tvisvar sinnum á dag auk fyrirlestra en einnig er mikið lagt upp úr skemmtanagildinu og má þar nefna kayak-ferðir, sundlaugapartý, bubblubolta, ratleik og fleira.
Við leggjum mikla áherslu á gæði og jákvæða upplifun á námskeiðinu okkar og munu reynslumiklir þjálfarar og leikmenn mæta og þjálfa á námskeiðinu ásamt því að halda fyrirlestra.
Takmörkuð sæti eru í boði og eru allar nánari upplýsingar á heimasíðu Íþróttaakademíu Íslands www.iai.is, á facebooksíðu Íþróttaakademíunnar eða í gegnum [email protected].
Verð 59.900 kr. (forskráningarverð til 4. desember).
Skráning á námskeiðið fer fram í gegnum eftirfarandi hlekk: https://www.iai.is/handknattleiksn%C3%A1mskei%C3%B0
- (Greitt er fyrir birtingu þessarar tilkynningar)