- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Hvernig lak boltinn inn?

- Auglýsing -

Ágústa Tanja Jóhannsdóttir, markvörður Selfoss, varð fyrir því óláni að skora skrautlegt sjálfsmark þegar liðið tapaði fyrir Stjörnunni, 34:28, í 12. umferð Olísdeildarinnar í Heklu höllinni í Garðabæ á laugardag.

Hanna Guðrún Hauksdóttir, leikmaður Stjörnunnar, braust þá í gegn, skaut í stöngina þaðan sem boltinn fór í bakið á Ágústu Tönju og sparkaði hún svo boltanum óvart í eigið net.

Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Handboltapassanum og kom markið um miðjan síðari hálfleik þegar Stjarnan var komin með góða forystu.

Markið skrautlega má sjá hér:

Selfoss heimsækir Hauka í Kuehne+Nagel höllina í Hafnarfirði í 13. umferð Olísdeildarinnar klukkan 19:30 í kvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -