Karlalið Hauka leikur heima og heiman gegn RK Jeruzalem Ormoz í 16-liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik í næsta mánuði. Fyrri viðureignin verður á Ásvöllum laugardaginn 15. febrúar klukkan 17.
Síðari leikurinn fer fram í Ormoz í Slóveníu laugardaginn 22. febrúar. Einnig stefnt á að sá leikur hefjist klukkan 17 að íslenskum tíma.
Haukar unnu finnska liðið HC Cocks í tveimur leikjum í 64-liða úrslitum samanlagt 64:53, síðla í október. Næst fór Hafnarfjarðarliðið til Aserbaísjan í 32-liða úrslitum og lagði Kür, 68:52, samtals í tveimur leikjum sem báður fór fram í Mingechevir í Aserbaísjan.
Haukar sátu yfir í fyrstu umferð Evrópubikarkeppninnar í september. RK Jeruzalem Ormoz var með í fyrstu umferð og vann litáiska liðið Granitas-Karys, 67:54. Í annarri umferð, 64-liða úrslit, vann slóvenska liðið RK Borac frá Bosníu í tveimur leikjum, 53:45. Í 32-liða úrslitum vann RK Jeruzalem Ormoz liðsmenn Mistra frá Eistlandi, 69:56.