- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

HK hefur samið við ungan Dana

- Auglýsing -

HK hefur samið við danska leikmanninn Andrew Wisman sem er fæddur árið 2004 og kemur upp úr öflugu akademíunni hjá Nordsjælland. Samningurinn HK og Wisman er til tveggja ára.

Wisman hefur spilað með Nordsjælland síðustu tvö tímabil en var í janúar lánaður til Ystad í Svíþjóð, þar sem hann leikur nú. Þá hefur hann einnig átt sæti í yngri landsliðum Danmerkur; og var í 20 manna hópi U20 landsliðsins sem varð heimsmeistari og vann silfur á Evrópumóti.


„Andrew er ungur og efnilegur leikmaður sem ég þekki vel frá mínum tíma hjá Nordsjælland, þar sem hann var að stíga sín fyrstu skref með aðalliðinu úr akademíunni. Hann er kröftugur leikmaður sem mun styrkja okkur á næstu árum og það er mikið gleðiefni að hann hafi valið HK fram yfir aðra möguleika sem hann hafði í boði. Við ætlumst til mikils af honum og vonum að hann haldi áfram að þroskast sem leikmaður í HK-treyjunni,“ er haft eftir Halldóri Jóhanni Sigfússyni þjálfara HK í tilkynningu.

Þess má geta að Halldór Jóhann þjálfaði danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland áður en hann flutti heim fyrir tveimur árum og tók við þjálfun HK.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -