- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Díana hefur verið ráðin til Fram

- Auglýsing -

Handknattleiksþjálfarinn Díana Guðjónsdóttir hefur samið við Fram um að taka við starfi aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna næstu þrjú árin. Auk þess mun Díana taka við þjálfun U-liðs kvenna og 3. flokks kvenna. Árum saman hefur Díana þjálfað hjá Haukum með frábærum árangri en mætir frá og með næsta tímabili í uppeldisfélagið sitt. Samningur Díönu og Fram er til þriggja ára.


Díana lék um langt árabil með sigursælum liðum Fram eins og fleiri úr hennar nærfjölskyldu.

Handbolti og Fram eru Díönu og hennar fjölskyldu nátengd. Faðir hennar, Guðjón Jónsson, þjálfaði Fram um árabil og systur hennar, Guðríður Guðjónsdóttir og Hafdís Guðjónsdóttir, léku og þjálfuðu einnig hjá félaginu í gegnum tíðina, segir m.a. í tilkynningu Fram í kvöld.

„Fram er metnaðarfullt félag með skýra framtíðarsýn og það er mikill heiður að fá að vera hluti af því verkefni. Ég hlakka til að vinna með leikmönnum og þjálfarateymi félagsins og leggja mitt af mörkum til áframhaldandi árangurs,“ er haft eftir Díönu í tilkynningu Fram.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -