Þórir Hergeirsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik kvenna, hefur verið kallaður inn í hóp sem leitar að næsta landsliðsþjálfari Noregs í handknattleik karla. „Hann er gulls ígildi fyrir okkur,“ segir Erik Langerud, framkvæmdastjóri norska handknattleikssambandsins, í samtali við VG og vísar til einstakrar reynslu Þóris. „Hann veit eftir hvaða eiginleikum við erum að leita að í væntanlegum þjálfara,“ bætir framkvæmdastjórinn við.
Með Þóri í leitarhópnum eru Kristian Bjørnsen fyrrverandi landsliðsmaður, Øyvind Indrebø stjórnarmaður í norska sambandinu og Erling Strand framkvæmdastjóri landsliðsins.
Nokkrar vikur eru síðan tilkynnt var að Jonas Wille, landsliðsþjálfari síðustu fjögur ár, axlaði sín skinn um mitt ár þegar samningur hans við sambandið rennur sitt skeið á enda.
Síðan að Þórir hætti þjálfun norska kvennalandsliðsins í árslok 2024 hefur hann verið kóngsins lausamaður og unnið við ráðgjöf og fyrirlestrahald. M.a. er hann í hlutastarfi hjá HSÍ og norska Ólympíutoppnum.



