4. flokkur kvenna HK hafnaði í sjöunda sæti í A-úrslitum á Norden Cup, óopinberu Norðurlandamóti félagsliða, sem lauk í Gautaborg í gær. Miklar framfarir eru hjá liðinu og má sem dæmi nefna að flokkurinn varð í 13. sæti á sama móti fyrir ári.
HK vann þrjá leiki á mótinu og tapaði þremur. Meðal sigurleikjanna var viðureign við Gautaborgarliðið Önnereds um sæti í A-úrslitum og síðan gegn norska liðinu Nordstrand IF um 7. sætið í gær. Í þeim leik vann HK upp fimm marka forskot Nordstrand IF á síðustu mínútunum, skoraði sex mörk í röð án þess að þær norsku fengju rönd við reist.
Hópurinn kemur heim í dag, mátulega fyrir áramótin eftir skemmtilega daga í Gautaborg.
Nánari frásögn frá mótinu er að finna hér, HK-handbolti.