Færeyska landsliðið hafnaði í áttunda sæti á heimsmeistaramóti karla, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, sem lýkur í kvöld í Króatíu. Færeyingar töpuðu í dag fyrir Noregi í leiknum um 7. sætið, 38:35, eftir að hafa verið þremur mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 22:19.
Norðmenn voru sterkari í leiknum frá upphafi til enda. Skarð var fyrir skildi í færeyska liðinu að einn helsti varnarmaðurinn, Rókur Ziskason, var fjarri góðu gamni vegna meiðsla sem hann varð fyrir í krossspilsleiknum við Portúgal á föstudaginn.
Óli Mittún var markahæstur með 11 mörk fyrir færeyska liðið. Línumaðurinn sterki Ísak Vedelsbøl var næstur með níu mörk.
Þýskaland lagði Portúgal í viðureign um fimmta sætið, 31:27.
Þjóðverjar voru með tögl og hagldir í leiknum frá byrjun til enda.
Króatar unnu til bronsverðlauna á mótinu með sigri á Afríkumeisturum Egyptalands, 39:37, eftir framlengda viðureign. Staðan var jöfn, 30:30, að loknum leik í 60 mínútur.
Úrslitaleikur Spánverja og Dana og hefst klukkan 18.
HMU19: Úrslit síðustu leikja mótsins – niðurstaðan