- Auglýsing -
Jonas Wille, þjálfari norska karlalandsliðsins í handknattleik, velkist ekki í vafa um hvaða þjóð sé sigurstranglegust á Evrópumótinu í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sem hefst í dag.
Noregur hefur leik í C-riðli í kvöld klukkan 19.30 þegar liðið mætir Úkraínu í Ósló.
Danmörk með sigurstranglegasta liðið
Wille ræddi við dönsku sjónvarpsstöðina TV 2 Sport, þar sem hann var spurður hvaða þjóð væri sigurstranglegust að hans mati.
„Þetta er leiðinlegt svar en Danmörk er auðvitað með sigurstranglegasta liðið. Við höfum aldrei séð betra handboltalið í sögunni.
Það sem Danir gera er brjálæðislega tilkomumikið. Á sama tíma eru þeir mannlegir þannig að það getur líka komið fyrir að þeir spili illa,“ sagði Wille.
- Auglýsing -





