- Auglýsing -
Handknattleikssamband Íslands hefur sett sérstaka VIP-miða í sölu fyrir tvo vináttulandsleiki karlalandsliðsins gegn Svíþjóð síðar í vikunni. Einn VIP-miði kostar 24.900 krónur og inniheldur ýmis fríðindi, þeirra á meðal sæti næst keppnisvöllunum fyrir aftan varamannabekki liðanna á Hlíðarenda og í Kaplakrika.
Vísir vekur athygli á þessari nýjung HSÍ og listar upp dagskrána fyrir handhafa VIP-miða fyrir báða leiki. Fyrri leikurinn fer fram á Hlíðarenda fimmtudaginn 19. mars klukkan 19.30 og síðari leikurinn í Kaplakrika laugardaginn 21. mars klukkan 17.
Miðasala á leikina tvo fer fram á Stubbi.
Dagskráin fyrir VIP miðahafa 19. mars:
- Opnar klukkan 18.00.
- Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson á pallborði sem Jóhann Alfreð sér um.
- Hreimur Örn Heimisson peppar fólkið með gítarnum.
- Pinnamatur og drykkir í boði hússins.
- Frátekin sæti bak við varamannabekki.
Dagskráin fyrir VIP miðahafa 21. mars:
- Opnar klukkan 15.30.
- Aron Pálmarsson auk leynigests á pallborði sem Jóhann Alfreð sér um.
- Tónlistaratriði.
- Pinnamatur og drykkir í boði hússins.
- Frátekin sæti bak við varamannabekki.
- Auglýsing -



