Fyrri umferð í þremur viðureignum í útsláttarkeppni Meistaradeildar kvenna í handknattleik fór fram um helgina. Krim og FTC áttust við á heimavelli slóvenska liðsins þar sem að Ana Gros átti stórleik og skoraði 13 mörk í sigri Krim, 33-26. Slóvensku meistararnir eru þar með komnir í vænlega stöðu fyrir seinni leikinn.
Dortmund tók á móti Metz þar sem að gestirnir voru mun sterkari á öllum sviðum og unnu, 30-22. Verður að teljast líklegt að franska liðið tryggi sér farseðilinn beint í Final4 helgina. Metz hleypur yfir átta liða úrslit keppninnar vegna þess að rússnesku meisturunum Rostov-Don var vísað úr leik eftir innrás rússneska hersins inn í Úkraínu.
Mesta spennan um helgina var í leik Odense og Brest þar sem að danska liðinu tókst að knýja fram eins marks sigur, 25-24.
Ekkert varð af leik CSM og CSKA Moskvu eftir að síðarnefnda liðinu var vikið úr keppni.
Krim 33-26 FTC (15-14).
- Ungverska liðið var aðeins tvisvar yfir í leiknum.
- Jovana Risovic, markvörður Krim, átti stórleik. Hún varði 17 skot, 41% markvörslu.
- Ana Gros, sem gekk til liðs við Krim á dögunum frá CSKA Moskvu, skoraði 13 mörk í leiknum.
- Horfir vel fyrir Krim um sæti í 8-liða úrslitum. Svo langt hefur liðið ekki komist í Meistaradeildinni frá tímabilinu 2012/13. Þá var Krim í undanúrslitum.
- Seinni leikur liðanna verður spilaður á heimavelli FTC í Ungverjalandi á laugardaginn.
Dortmund 22-30 Metz (9-18).
- Andre Fuhr þjálfari Dortmund þurfti að nota tvö leikhlé á fyrstu 20 mínútum leiksins, svo illa gekk.
- Ivana Kapitanovic markvörður Metz átti stóran þátt í því að franska liðið var með níu marka forystu í hálfleik. Hún var með 50% markvörslu eftir fyrri hálfleik.
- Leikmenn Dortmund komu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og náðu að minnka muninn niður í 26-21. Frönsku gestirnir náðum góðum lokakafla og tryggðu sér átta marka sigur, 30-22.
- Alina Grijseels var markahæst í liði Dortmund með níu mörk en hjá Metz var Meline Nocandy markahæst með 6 mörk.
- Grace Zaadi, sem gekk til liðs við Metz á láni frá Rostov-Don, skoraði 3 mörk í leiknum.
- Þetta var sjötti tapleikur Dortmund í röð í Meistaradeildinni.
Odense 25-24 Brest (13-12).
- Fjögur mörk í röð frá Helene Fauske hjálpaði Brest að ná góðum 6-2 kafla í upphafi seinni hálfleiks og útlitið var orðið gott hjá franska liðinu.
- Danska liðið náði þó að svara fyrir sig með 4-1 kafla undir lokin sem gerði að verkum að Odenseliðið náði að snúa leiknum sér í vil.
- Odenseliðinu tókst að nýta sér breiddina í leikmannahópnum. Dione Housheer, hægri skytta liðsins, var markahæst með 5 mörk.
- Markvarðapar franska liðsins náði sér engan veginn á strik. Sandra Toft varði 3 skot og Cleopatre Darleux varði 4 skot.
- Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Brest sunnudaginn 3. apríl.
How much we have missed the 𝙏𝙊𝙋 5 𝙂𝙊𝘼𝙇𝙎! | Play-offs 1st leg round! 🔥⚡
— EHF Champions League (@ehfcl) March 28, 2022
5️⃣ Alina GRIJSEELS | #BVBDortmund
4️⃣ Larissa NÜSSER | #HCOdense
3️⃣ Emily BÖLK | @Fradi_HU
2️⃣ Helene FAUSKE | @BBH_Officiel
1️⃣ Ana GROS | @RKKrim
The best goal of the weekend was _______ ❓❓❓ pic.twitter.com/GyAOiKLDGK