Önnur umferð Meistaradeildar kvenna í handknattleik fer fram um helgina með tveimur leikjum í dag en sex leikir verða á dagskrá á morgun, sunnudag.
Báðir leikir dagsins eru í B-riðli þar sem að kastljósið mun beinast að leik Buducnost og Esbjerg. Danska liðið freistar þess að ná sínum fyrsta sigri á þessu tímabili eftir naumt tap á heimavelli um síðustu helgi fyrir ungverska meistaraliðinu Györ.
Í hinum leik dagsins taka nýliðarnir í Storhamar á móti króatíska liðinu Lokomotiva Zagreb. Axel Stefánsson er annar þjálfara norska liðsins sem Storhamar en það tapaði fyrir Metz á síðasta sunnudag í frumraun sinni í Meistaradeildinni.
Leikir dagsins
B-riðill:
Buducnost – Esbjerg | kl 14.00 | Beint á EHFTV
- Esbjerg vann báða leiki liðanna á síðustu leiktíð, 35-20 og 36-25.
- Buducnost sigraði tyrkneska liðið Kastamonu auðveldlega í 1. umferð.
- Buducnost hefur ekki sigrað í tveimur fyrstu leikjum sínum í riðlakeppninni frá tímabilinu 2016/17. Það tímabil gekk svo vel hjá svartfellska meistaraliðinu að það náði alla leið í Final4.
- Esbjerg var nálægt því að vinna Györ um síðustu helgi. Það varð liðinu að falli að ná ekki að stöðva eitruð hraðaupphlaup ungverska liðsins.
Storhamar – Lokomotiva Zagreb | kl. 16.00 | Beint á EHFTV
- Bæði lið vonast eftir sínum fyrsta sigri í Meistaradeildinni. Storhamar tapaði fyrir Metz en Lokomotiva tapaði gegn Rapid Búkarest.
- Þetta er í fyrsta sinn sem liðin mætast í Evrópukeppni í handknattleik.
- Norska liðið skoraði fæst mörk allra í 1.umferð, aðeins 22.
- Guðjón L. Sigurðsson verður eftirlitsmaður EHF á leiknum í Hamri.
handbolti.is nýtur ekki opinbers rekstrarstuðnings.