„Mér líður alveg frábærlega. Við lékum bara mjög vel og uppskárum eftir því,“ sagði Ómar Ingi Magnússon nýkrýndur Evrópumeistari í handknattleik karla með þýska liðinu SC Magdeburg þegar handbolti.is hitti hann rétt eftir að hann hafði tekið við gullverðlaunum eftir sigur Magdeburg á Füchse Berlin, 32:26, í úrslitaleik í Lanxess Arena í Köln í kvöld.
Ómar Ingi var meiddur þegar Magdeburg vann Meistaradeildina fyrir tveimur árum.
„Ég hafði það að tilfinningunni allan tímann að við værum með tök á þeim [þ.e. liði Füchse Berlin-innskot], hefðum frumkvæðið. Það var mikill vilji í okkur öllum, nokkuð sem maður skynjaði frá byrjun,“ sagði Ómar Ingi sem skoraði sex mörk í úrslitaleiknum í dag og 11 mörk í undanúrslitaleiknum í gær þegar Magdeburg vann Barcelona, 31:30.
Ómar Ingi sagði mikla pressu hafa verið á Magdeburgliðinu alla leiktíðina og síðustu sex mánuði þá hafi það nánast verið í úrslitaleikjum á öllum vígstöðum.

„Við höfum verið á tánum og mættum með því hugarfari hingað að það kæmi ekki til greina að tapa þessu, reynslunni ríkari frá síðasta ári þegar við mættum hingað til Kölnar,“ sagði Ómar Ingi Magnússon sem andaði léttar. Framundan er nokkurra vikna frí áður en undirbúningur fyrir næstu leiktíð hefst.
Gísli Þorgeir sá besti í annað sinn
Allt small hjá okkur – mikil vinna til að ná helginni