- Auglýsing -
Hugo Descat, vinstri hornamaður Evrópumeistara Frakklands og Veszprém KC, meiddist á ökkla á æfingu með franska landsliðinu í gær og missir af þeim sökum af öðrum af upphafsleikjum Evrópumótsins í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í dag.
Frakkland mætir Tékklandi í C-riðli í Ósló klukkan 17 og getur Descat ekki tekið þátt í leiknum.
Frakkar verða fyrir blóðtöku rétt fyrir EM
Handknattleikssamband Frakklands greinir frá því að Descat hafi snúið sig á hægri ökkla. Góðu fréttirnar fyrir Frakka eru hins vegar þær að ekki er um alvarleg meiðsli að ræða.
Vonir standa því til þess að Descat geti snúið aftur strax í annarri umferð þegar Frakkland mætir Úkraínu á laugardag.
- Auglýsing -



