- Auglýsing -
- Bjarki Finnbogason og félagar hans í Anderstorps komu sér upp úr fallsæti í Allsvenskan, næst efstu deild sænska handknattleiksins í lokaumferðinnni í gærkvöld þeir unnu Redbergslid, 24:22, á heimavelli. Þess í stað féll Redbergslid úr deildinni ásamt Lindesberg. Anderstorps með Bjarka innanborðs fer í umspil um áframhaldandi veru í Allsvenskan ásamt IFK Ystads. Bjarki skoraði ekki mark í leiknum í gær.
- Sú staðreynd að hið sögufræga lið, Redbergslid, er fallið niður í 3. deild í sænska handknattleiknum eru mikil tíðindi. Redbergslid féll úr úrvalsdeildinni í Allsvenskan fyrir ári eftir að hafa verið í úrvalsdeild sleitulaust frá 1983.
- Ekkert lið hefur oftar orðið sænskur meistari í karlaflokki en Redbergslid, alls 20 sinnum. Fall félagsins er mikið og ljóst er að framundan er mikil uppstokkun, jafnt utan vallar sem innan.
- Rúmensku liðin CS Gloria 2018 BN og H.C. Dunarea Braila mætast í undanúrslitum Evrópudeildar kvenna í handknattleik 11. maí í Graz. H.C. Dunarea Braila vann deildar- og bikarmeistara Vals í 1. umferð forkeppninnar í haust. Dregið var í undanúrslit í gær.
- Í hinni undanúrslitaviðureigninni eigast við Neptunes Nantes frá Frakklandi og norska liðið Storhamar sem Axel Stefánsson þjálfar við annan mann.
- Úrslitaleikur Evrópudeildar kvenna fer fram í Graz sunnudaginn 12. maí. Ikast vann Evrópudeildina á síðasta keppnistímabili.
- Auglýsing -