- Auglýsing -
- Þýska handknattleiksliðið SG Flensburg-Handewitt staðfesti í gær að Daninn Anders Eggert taki til starfa í þjálfarateymi félagsins í sumar. Eggert er fyrrverandi landsliðsmaður og leikmaður Flensburg frá 2006 til 2017. Hann er núna aðstoðarþjálfari KIF Kolding í heimalandi sínu.
- IK Sävehof, liðið sem Tryggvi Þórsson leikur með, er deildarmeistari í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla. Hammarby er í öðru sæti og getur ekki jafnað IK Sävehof að stigum. Þjálfarinn Michael Apelgren stefnir næst á að vinna meistaratitilinn áður en hann kveður félagið í sumar og tekur við þjálfun Pick Szeged í Ungverjalandi. IK Sävehof tekur í kvöld á móti króatíska liðinu RK Nexe í síðustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik.
- Nantes og Sporting eru örugg um sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Liðin eru og verða efst í fyrsta og fjórða riðli hvernig sem leikir kvöldsins fara í kvöld. Flensburg stendur afar vel að vígi í þriðja riðli og RK Nexe er í efsta sæti í öðrum riðli en þarf eitt stig gegn Sävehof til að vinna riðilinn.
- Sigurlið hvers riðils 16-liða úrslita Evrópudeildar karla fara beint í átta liða úrslit. Liðin sem hafna í öðru og þriðja sæti taka þátt í krossspil á milli riðla um sæti í átta liða úrslitum. Stöðuna í riðlunum er að finna hér.
- Auglýsing -