- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Molakaffi: Hákun, Elias, Odense, Ikast, AEK, Dumoulin

Hákun West av Teigum í leik með færeyska landsliðinu í Laugardalshöll. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -
  • Hákun West av Teigum varð í gær fyrsti færeyski handknattleiksmaðurinn til þess að verða þýskur meistari í handknattleik karla. Hákun er örvhentur hornamaður Füchse Berlin sem vann þýska meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu sinni. 
  • Danska handboltafréttasíðan hbold.dk sagði frá því gær að færeyski landsliðsmaðurinn Elias Ellefsen á Skipagøtu gangi til liðs við danska úrvalsdeildarliðið GOG á næstu dögum. Elias hefur verið hjá Kiel í Þýskalandi í tvö ár. 
  • Forráðamenn GOG hafa leitað logandi ljósi síðustu daga að leikmanni til þess að fylla skarð Norðmannsins Tobias Grøndahl sem seldur var til þýska meistaraliðsins Füchse Berlin í vikunni. 
  • Verði af komu Ellefsen hittir hann fyrir frænda sinn Óla Mittún sem flyst frá IK Sävehof til GOG í sumar.
  • Odense Håndbold vann Esbjerg, 33:28, í annarri viðureign liðanna um danska meistaratitilinn í handknattleik kvenna í gær þegar leikið var í Esbjerg. Liðin hafa unnið einn leik hvort. Oddaleikurinn fer fram í Óðinsvéum á fimmtudaginn. 
  • Ikast Håndbold vann bronsverðlaunin í dönsku úrvalsdeild kvenna. Liðið lagði København Håndbold öðru sinni, 30:25, í gær. Leikmenn liðanna eru þar með komnir í sumarleyfi. 
  • AEK Aþena heldur lífi í úrslitaeinvíginu um gríska meistaratitilinn í handknattleik karla. Eftir sigur Olympiakos í tveim fyrstu viðureignunum vann AEK á heimavelli í gær, 36:30. Næst leiða liðin saman hesta sína á þriðjudaginn. 
  • Franski markvörðurinn Cyril Dumoulin hefur ákveðið að láta gott heita og leggja skóna á hilluna góðu. Dumoulin er fertugur og lék 81 landsleik. Hann var m.a. í sigurliði Frakka á EM 2014 og HM 2015. Dumoulin var markvörður Nantes þegar liðið lék til úrslita og tapaði fyrir Montpellier Meistaradeild Evrópu fyrir sjö árum. Síðustu ár hefur Dumoulin verið markvörður Tremblay.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -