- Auglýsing -
- Harpa Rut Jónsdóttir skoraði eitt mark þegar lið hennar, GC Amicitia Zürich, gerði jafntefli við Yellow Winterthur, 22:22, í fyrstu umferð svissnesku A-deildarinnar í handknattleik kvenna í gær.
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fjögur mörk fyrir Amo HK í 18 marka sigri liðsins á Uppsala HK í þriðji og síðustu umferð í 6. riðli sænsku bikarkeppninnar í gær. Sigurinn tryggði Amo HK sæti í 16-liða úrslitum.
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Sveinn Jóhannsson skoruðu sitt markið hvor þegar lið þeirra GWD Minden tapaði á útivelli fyrir Potsdam, 31:30, í fyrstu umferð þýsku 2. deilarinnar í gær. Aðalsteinn Eyjólfsson tók við þjálfun GWD Minden í sumar.
- Bjarni Ófeigur átti fimm stoðsendingar en geigaði einnig á fimm skotum. Sveinn átti eina stoðsendingu auk marksins fyrir GWD Minden í leiknum í Potsdam.
- Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði 12 mörk þegar Volda vann Kjelsås, 41:20, í næst efstu deild norska handknattleiksins á föstudaginn. Leikurinn fór fram í Volda. Liðið féll úr úrvalsdeildinni í vor eftir umspil. Dana Björg er ein eftir af Íslendingum hjá félaginu.
- Orri Freyr Þorkelsson og samherjar í Sporting unnu Ciudad de Logroño, 39:29, í leiknum um bronsverðlaunin í Íberíubikarnum í handknattleik karla í gær. Orri Freyr skoraði þrjú mörk fyrir Sporting. Barcelona vann Porto, 44:38, í úrslitaleik.
- Auglýsing -