- Auglýsing -
- Hvorki Fredericia HK né Odense Håndbold áttu að keppa fyrir hönd Danmerkur í Meistaradeild karla og kvenna á síðustu leiktíð. Komið hefur upp úr dúrnum að starfsmenn danska handknattleikssambandsins lásu ekki til hlítar reglurnar um það hvaða lið auk meistaranna eiga að aukasæti sem Danmörk í hvorri keppni fyrir sig.
- Þetta kom upp úr dúrnum þegar farið var að lesa betur yfir reglurnar í kjölfar þess að forráðamenn karlaliðsins Skjern töldu sig vera illa svikna á dögunum þegar þeim var sagt frá að Skjern ætti ekki möguleika á öðru sæti Danmerkur í Meistaradeildinni á næstu leiktíð þrátt fyrir að liðið léki til úrslita um meistaratitilinn í Dammörku, líkt og Fredericia HK gerði í fyrra.
- Sænski handknattleiksmaðurinn Andreas Flodman sem flutti heim til Svíþjóðar í sumar eftir 13 ára feril utan heimalandsins er alvarlega meiddur á hné. Óvíst er að hann leiki handknattleik næsta árið. Flodman, sem er 32 ára gamall, gekk til liðs við æskufélag sitt, Guif í Eskilstuna og ætlaði sér að taka þátt í uppbyggingu. Óttast er að hann taka lítið þátt í uppbyggingunni innan vallar vegna þessara slæmu meiðsla.
- Hermt er að ungverska meistaraliðið One Veszprém sé á höttunum eftir markverði eða markvörðum þessa dagana. Tveir hafa verið sérstaklega nefndir, annarsvegar Miljan Vujovic markvörður Stuttgart og hinsvegar Norðmaðurinn André Kristensen sem fór á kostum með Sporting Lissabon á nýliðnu tímabili. Kristensen er samningsbundinn til næstu tveggja ára hjá Sporting en Vujovic er að renna út af samningi í Stuttgart.
- Danski markvörðurinn Mike Jensen kveður One Veszprém í sumar eftir hálfs annars árs veru.
- Sænska landsliðskonan Linn Hansson hefur samið við franska liðið Paris 92. Hún kemur frá IK Sävehof sem í staðinn hefur samið við Elínu Klöru Þorkelsdóttur.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -