- Auglýsing -
- Forráðamenn Barcelona voru allt annað en hressir með dómgæsluna í undanúrslitaleik liðsins við SC Magdeburg í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í Lanxess Arena á síðasta laugardag. Sögði þeir dómgæslu leiksins ekki hafa verið viðunandi en m.a. fengu þrír leikmenn liðsins rauð spjöld. Eins sagði Carlos Ortega þjálfari Barcelona ekki hafi verið samræmi í dómgæslunni. Mótmæli voru send til Handknattleikssambands Evrópu. Barcelonamenn höfðu ekki erindi sem erfiði.
- Norður Makedóníumennirnir Gjorgji Nachevski og Slave Nikolov dæmdu leikinn. Þeir félagar hafa löngum ekki verið allra, eins og sagt er.
- Hákun West av Teigum, hægri hornamaður Füchse Berlin varð á sunnudaginn fyrsti Færeyingurinn til þess að vinna til verðlauna í Meistaradeild Evrópu þegar Füchse Berlin hlaut silfurverðlaun í keppninni eftir tap fyrir SC Magdeburg í úrslitaleik, 32:26. Hákun skoraði sjö mörk í átta skotum og var markahæstur leikmanna Berlínarliðsins ásamt Dananum Mathias Gidsel.
- Ríflega þriðjungur aðgöngumiða á úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla á næsta ári seldist um síðustu helgi þegar leikið var til úrslita. Um 7.000 miðar seldust á laugardag og sunnudag í miðasölunni í Lanxess Arena í Köln.
- Rétt ríflega 20 þúsund miðar verða til sölu en síðustu 2.000 miðarnir verða geymdir og ætlaðir til sölu hjá liðunum fjórum sem komast alla leið í undanúrslit.
Úrslitahelgi Meistaradeildar karla verður 13. og 14. júní 2026 og að vanda verður leikið í Lanxess Arena í Köln eins og undanfarin 15 ár.
- Metfjöldi áhorfenda var á úrslitaleik SC Magdeburg og Füchse Berlin í Lanxess Arena á sunnudaginn, 20.027 greiddu aðgangseyri. Á undanförnu ári hafa verið gerðar lítilsháttar breytingar á áhorfendastúkum keppnishallarinnar í Köln og sætum fjölgað um 800.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -