- Auglýsing -
Annari umferð í Meistaradeild kvenna lýkur í dag með tveimur leikjum þegar að Buducnost tekur á móti Dortmund annars vegar og CSKA mætir nýliðum Kastamonu frá Tyrklandi.
A-riðill
Buducnost – Dortmund | Sunnudagur kl. 14.00 | Beint á EHFTV
- Buducnost, sem tapaði gegn Podravka um síðustu helgi, hefur ekki tapað fyrstu tvemur leikjum í Meistaradeildinni frá tímabilinu 2009/10.
- Svartfellska liðinu vantar einn sigurleik í viðbót til þess að ná 150 sigurleikjum í Meistaradeildinni. Aðeins ungverska liðið Györ hefur rofið 150 leikja sigurmúrinn. Györ hefur unnið 177 leiki í sögu Meistaradeildarinnar.
- Lið sömu félaga mættust í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð og þá hafði Buducnost betur í báðum viðureignum, 31-27, á heimavelli og 28-26 í Þýskalandi.
B-riðill
CSKA – Kastamonu | Sunnudagur kl. 12.00 | Beint á EHFTV
- CSKA sem var nýliði á síðustu leiktíð og komst alla leið í Final4 leikur í dag sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu í Meistaradeildinni á þessari leiktíð en viðureigninni við Metz um síðustu helgi var frestað.
- Tyrkneska liðið vonast til þess að ná í sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni í dag en það tapaði fyrir Odense um síðustu helgi.
- Bæði lið hafa rúmenska þjálfara. Florentin Pera er hjá CSKA og Costica Buceschi þjálfar Kastamonu.
- Bæði lið voru með konu á stóli þjálfara á síðustu leiktíð. Helle Thomsen þjálfaði Kastamonu og Olga Akopyan þjálfaði CSKA síðustu vikur tímabilsins eftir að Dananum Jan Leslie var óvænt sagt upp.
Úrslit leikja í gær:
CSM Búkarest – Roston-Don 27:30.
FTC (Ferencvaros) – Podravka 33:27.
Odense – Metz 21:27.
Brest Bretagne – Esbjerg 26:23.
Krim – Györ 26:31.
Vipers Kristiansand – Sävehof 34:25.
- Auglýsing -