- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Skammvinn gleði hjá leikmönnum Skjern

Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Leikmenn Skjern Håndbold fögnuðu ákaft á laugardaginn þegar liðið vann GOG í oddaleik undanúrslita í dönsku meistarakeppninni og tryggði sér þar með sæti í úrslitum gegn Aalborg. Auk úrslitasætisins töldu margir, þar á meðal leikmenn sjálfir, að sætið í úrslitunum tryggði liðinu einnig möguleika á að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Í Danmörku þykir það happ að komast í Meistaradeildina.

Gleðin yfir hugsanlega sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð var skammvinn eftir að annað kom á daginn en það sem menn héldu.

Þurfa að verða meistarar

Skjern þarf nefnilega að vinna úrslitaleikina gegn Aalborg til að geta leikið í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Ef Aalborg vinnur danska meistaratitilinn mun aukasæti Danmerkur í Meistaradeildinni á næstu leiktíð falla GOG í skaut.

Deildarkeppnin gildir

Skýringin liggur í evrópsku reglunum, þar sem segir að félög, ákveðinni þjóða, geta aðeins sótt um sæti Meistardeildinni ef þau hafa þegar tryggt sér sæti í Evrópudeildinnimeð tilskyldum árangri í deildarkeppninni heima fyrir. Vegna þess að Skjern hafnaði í áttunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar þá hefur liðið ekki þátttökurétt í Evrópukeppni á næstu leiktíð, ekki einu sinni í Evrópbikarkeppninni. Árangur liðsins í úrslitakeppninni hefur ekkert að segja í þeim efnum.

GOG hreppir hnossið

Þess í stað er það GOG, sem endaði í öðru sæti í deildarkeppninni, sem fær tækifæri til að sækja um sæti í Meistaradeildinni ef Aalborg Håndbold verður danskur meistari. Takst Skjern hinsvegar að vinna Aalborg í úrslitaeinvíginu öðlast Skjern sæti í Meistaradeildinni en Aalborg verður að sækja um keppnisrétt en GOG fer þá í Evrópudeildina.

„Þetta er rétt. Skjern þarf að vinna danska meistaratitilinn. Annars mun félagið ekki spila í Evrópukeppni á næsta tímabili,“ segir Frank Smith mótastjóri danska handknattleikssambandsins við TV 2 Sport.

Fyrsti úrslitaleikurinn Aalborg og Skjern fer fram annað kvöld en vinna þarf tvo leiki til þess að verða meistari.

Skjern leikur óvænt til úrslita í Danmörku

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -