Óðinn Þór Ríkharðsson fór á kostum og skoraði níu mörk í tíu skotum í tíu marka sigri Kadetten Schaffhausen, 32:22, í þriðja sigri liðsins á HSC Suhr Aarau í undanúrslitum úrslitakeppni svissnesku A-deildarinnar í handknattleik í gær. Kadetten er...
Dagur Gautason lék annan hálfleikinn með Montpellier í sjö marka sigri á heimavelli á Chartres, 37:30, í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Dagur skoraði fjögur mörk í fimm skotum. Montpellier heldur áfram að dansa á milli annars...
Matthias Musche leikur ekki með SC Magdeburg næstu mánuði. Hann reif hásin snemma leiks Magdeburg og Veszprém í Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld. Musche er enn einn leikmaður liðsins sem verður fyrir alvarlegum og langvarandi meiðslum á leiktíðinni.
Franski markvörðurinn Vincent...
Arnór Þór Gunnarsson stýrði sínum mönnum í Bergischer HC til sigurs gegn Balingen-Weilstetten, 33:32, á heimavelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Bergischer HC hefur þar með níu stiga forskot í efsta sæti deildarinnar þegar liðið á...
Dagur Gautason og liðsfélagar í Montpellier standa vel að vígi eftir eins marks sigur á FC Porto, 30:29, í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik karla í gærkvöld. Leikið var í Porto. Síðari viðureignin fer...
Danski dómarinn, Jesper Madsen, sem féll í yfirlið í kappleikjum í lok febrúar og aftur í byrjun mars, hefur fengið greiningu á því hvað hrjáir hann. Um er að ræða svokallað steinaflakk í eyrum sem m.a. veldur svima. Hann...
Austurríski landsliðsmarkvörðurinn Constantin Möstl hefur skrifað undir þriggja ára samning við Lemgo. Hann kom til félagsins síðasta sumar frá Alpla Hard og skrifaði undir tveggja ára samning. Möstl hefur staðið sig frábærlega á leiktíðinni og unnið hug og hjörtu...
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í ORLEN Wisła Płock unnu stórsigur á Energa MKS Kalisz, 40:24, í fyrstu viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni pólsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik á heimavelli í gær. Viktor Gísli stóð vaktina í markinu...
Hvorki Aron Pálmarsson né Bjarki Már Elísson voru með One Veszprém í gær þegar liðið vann nýkrýnda bikarmeistara, Pick Szeged, 36:33 á heimavelli í 23. umferð ungversku 1. deildarinnar í handknattleik. Hugo Descat var markahæstur hjá Veszprém með níu...
Elvar Ásgeirsson skoraði eitt mark og var einu sinni vikið af leikvelli í góðum sigri Ribe-Esbjerg, 28:25, á TMS Ringsted á heimavelli í gær í keppni liðanna sem höfnuðu í níunda til 13. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar. Elvari brást bogalistin...